Nánast ómögulegt að vera ritstjóri og sitja í stjórnarskrárnefnd samtímis 2. febrúar 2006 23:24 Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, var ráðinn ritstjóri Fréttablaðsins í fyrradag. MYND/GVA
Það verður mjög erfitt fyrir Þorstein Pálsson að vera óháður ritstjóri Fréttablaðsins á meðan hann er talsmaður Sjálfstæðisflokksins í stjórnarskrárnefnd. Þetta segir ritstjórinn fyrrverandi, Össur Skarphéðinsson, sem einnig situr í nefndinni. Hann segir jafnframt að átök hafi átt sér stað innan nefndarinnar sem hann kveðst eiga von á að eigi eftir að harðna þegar fram í sækir. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, var ráðinn ritstjóri Fréttablaðsins í fyrradag. Hann situr fyrir hönd flokksins í stjórnarskrárnefnd, og er ennfremur varaformaður hennar, en nefndin vinnur nú að endurskoðun stjórnarskrárinnar. Þorsteinn sagðist í dag ekki sjá að störf hans sem ritstjóri og nefndarmanns skarist, né að seta hans í nefndinni geri Fréttablaðinu erfiðara fyrir að fjalla um störf nefndarinnar. Þessu er Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar og einn nefndarmanna, ósammála. Hann segir ljóst að með ráðningu Þorsteins sé einn af trúnaðarmönnum Sjálfstæðisflokksins orðinn ritstjóri Fréttablaðsins, og kveðst hann ekki geta séð hvernig blaðið geti fjallað á hlutlausan hátt um margt af því sem viðkemur störfum nefndarinnar. Ekki síst sé það erfitt í ljósi þess að átök hafa átt sér stað innan nefndarinnar sem líklega eigi eftir að aukast og ná út fyrir nefndina, og þannig verða opinber. Aðspurður hvort Þorsteinn eigi að hans mati að víkja úr nefndinni segir Össur að það verði Þorsteinn sjálfur að gera upp við sig.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira