Innlent

Sigursteinn nýr formaður

Sigursteinn Másson var kjörinn formaður Öryrkjabandalagsins á aðalfundi í gærkvöld. Sigursteinn segir fjölmörg og stór verkefni blasa við sér. „Í lok nóvember stefnir í að mál okkar gegn ríkisstjórninni verði dómtekið og við væntum niðurstöðu í því fljótlega á nýju ári,“ segir Sigursteinn. Hann segir einnig að von sé á nýrri skýrslu frá Háskóla Íslands sem leiði margt nýtt í ljós um málefni og stöðu öryrkja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×