Innlent

Brimborg fær ekki að skila 113 milljóna lóð

Lögmaður Brimborgar segir fyrirtækið berjast við að halda starfsólkinu og vilja fá gatnagerðargjöld á Esjumelum endurgreidd til að nota í varnarbaráttu sem fram undan sé.
Lögmaður Brimborgar segir fyrirtækið berjast við að halda starfsólkinu og vilja fá gatnagerðargjöld á Esjumelum endurgreidd til að nota í varnarbaráttu sem fram undan sé. Fréttablaðið/GVA

Borgarráð hefur synjað Brimborg ehf. um að fá að skila 24 þúsund fermetra atvinnulóð á Esjumelum og fá 113 milljóna króna gatnagerðargjöld endurgreidd.

Lögmaður Brimborgar, Tómas Jónsson, telur fyrirtækið eiga skýlausan rétt á að skila lóðinni en Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri hjá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar, telur borginni ekki skylt að leysa lóðina til sín.

Í bréfi til borgaryfirvalda rekur Tómas Jónsson þær áætlanir sem Brimborg hafði með lóðina sem fyrirtækið fékk úthlutað á Esjumelum í febrúar árið 2006. Þar hafi átt að vera framtíðaraðstaða sölu og þjónustu fyrir vörubíla, vinnuvélar og bátavélar auk sölu notaðra bíla og þjónustu við fólksbíla. Þrátt fyrir mikinn samdrátt sem byrjað hafi í mars á þessu ári hafi Brimborg talið mögulegt að ljúka verkefninu. Forsendurnar hafi hins vegar brostið þegar bíla- og atvinnutækjamarkaðurinn féll eftir hrun bankakerfisins í byrjun október.

„Telur umbjóðandi minn að það muni taka ár og jafnvel áratugi fyrir þann markað að ná aftur fyrri styrk. Þeir fjármunir sem fást við endurgreiðslu gatnagerðargjalda verða að sjálfsögðu notaðir í þeim tilgangi að styrkja fyrirtækið í þeirri varnarbaráttu sem fram undan er,“ segir lögmaður Brimborgar í bréfi sínu. Tómas bendir á að starfsmenn fyrirtækisins séu um 200 talsins og segir mikla áherslu hafa verið lagða á að vernda störf þeirra.

Að sögn Tómasar telur Brimborg sig hafa skilað inn umræddri lóð 9. október. Það hafi verið 41 degi áður en borgarráð ákvað, 20. nóvember, að breyta verklagi við skil á lóðum.

Ágúst Jónsson hjá framkvæmdasviði borgarinnar segir hins vegar að í lóðaskilmálunum hafi hvergi verið gert ráð fyrir að lóðarhafinn gæti einhliða skilað lóðinni til baka. Samþykkt borgarráðs frá 20. nóvember hafi hins vegar aðeins verið árétting á fyrri skilmálum. Ástand efnahagslífsins snerti alla og Reykjavíkurborg verði að gæta sinna hagsmuna. Aðstæður Brimborgar séu ekki svo sérstakar umfram aðra lóðarhafa að víkja beri frá almennum reglum vegna fyrirtækisins.

Að tillögu skrifstofustjórans samþykkti borgarráð að synja Brimborg um skil á lóðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×