Erfitt að slíta ungabarn frá óregluforeldrum Nanna Hlín skrifar 23. júlí 2008 11:55 Hrefna Friðriksdóttir, lögfræðingur hjá Barnaverndarstofu
Aðstæður og aldur barns ráða miklu þegar tekin er ákvörðun til þess hvort taka eigi barn af foreldrum í tilfelli sem því þegar par með fjögurra mánaða gamalt barn var tekið með 180 grömm af hassplötum í fyrradag. „Þegar svona mál koma upp verður fyrst að vega og meta hvort brýnt sé að grípa strax til einhverra aðgerða. Það er metið út frá ýmsu, hvort til séu upplýsingar um viðkomandi aðila fyrir eða hvort málið sé nýtt," segir Hrefna Friðriksdóttir lögfræðingur hjá Barnaverndarstofu. Hrefna segir nauðsynlegt að vera vakandi fyrir stöðu beggja foreldra. „Þarft er að skoða bakgrunninn, hver staða foreldra sé á þessari stundu og hvað þeim finnst um næsta skref. Það getur komið til álita að fólk vilji sjálft reyna að axla ábyrgð á stöðunni, hafa samband við traustan aðila og takast á við uppeldishlutverkið með þeim aðila." „Ef staða foreldra er mjög slæm og engin skynsamleg viðbrögð frá þeim varðandi aðstæður hafa barnavernaryfirvöld ávallt heimild til að taka barn tafarlaust úr umsjón foreldris og koma því fyrir einhvers staðar. Þetta þarf að meta stig af stigi, best er að taka ákvarðanir í stuttan tíma í einu," segir Hrefna. Hrefna nefnir að þegar brot eru framin þurfi einnig að taka tillit til hvort foreldrar séu úrskurðaðir í gæsluvarðahald og svo hvort þeir séu dæmdir í fangelsi. „Að foreldri velji sér svona hætturlegan lífstíl er grafalvarlegt mál. Það hlýtur að gefa vísbendingar um að þetta fólk hafi ekki nægilegan skilning á þörfum barnsins að það hafi haft barnið með sér," segir Hrefna um hið nýlega tilfelli. Hún segir þó að erfitt sé að segja af eða á með slíkt fyrr en að vandlega hugsuðu máli. Að auki er mjög mikilvægt að taka tillit til aldur barnsins að hennar sögn. „Fjögurra mánaða barn gerir sér ekki grein fyrir því hvað það er og hefur aðrar þarfir um öryggi en eldra barn. Mikilvægast er fyrir svo gamalt barn að hafa einhvern sem það þekkir, rútínu og síðast en ekki síst næringu. Æskilegt er að reyna að leyfa barninu að vera hjá móðurinni ef hún hefur haft það á brjósti." Markmið laganna er að aðstoða foreldra og grípa aldrei til harkalegri aðgerða gegn foreldrum en þeirra sem þarfir barnsins krefjast. Markmiðið er ekki að refsa foreldrum en barnaverndaryfirvöld taka eins stórar ákvarðanir og þörf er á.
Tengdar fréttir Par sem var tekið fyrir vörslu hassplatna enn með barnið Karlmaðurinn og konan sem voru handtekin í fyrrinótt í Reykjanesbæ með 180 grömm af hassplötum og fjögurra mánaða gamalt barn sitt var sleppt úr haldi í dag. Er parið enn með barnið undir sinni forsjá. 22. júlí 2008 22:01 Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Fleiri fréttir Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Sjá meira
Par sem var tekið fyrir vörslu hassplatna enn með barnið Karlmaðurinn og konan sem voru handtekin í fyrrinótt í Reykjanesbæ með 180 grömm af hassplötum og fjögurra mánaða gamalt barn sitt var sleppt úr haldi í dag. Er parið enn með barnið undir sinni forsjá. 22. júlí 2008 22:01