Innlent

Yfirvofandi í töluverðan tíma

Allri vinnslu í fiskvinnslufyrirtækinu Suðurnesjum var hætt í dag og öllum fjörutíu og fimm starfsmönnum fyrirtækisins sagt upp. Á fundi með starfsmönnum í dag var endanlega tilkynnt um lokun fyrirtækisins. Þar sögðust stjórnendurnir jafnframt ætla að hjálpa starfsmönnum að finna sér nýja vinnu og þeir munu funda með starfsmönnum í fyrramálið til að ræða þau mál. Hljóðið í starfsmönnum eftir fundinn var misjafnt. Sumir voru svartsýnir og bentu á að þau störf sem nefnd hefðu verið væru erfiðsvinnur sem aðeins hentuðu karlmönnum. Einn þeirra er Kristján Pétursson en kona hans og dætur misstu allar vinnuna í dag. Hann segir litla vinnu að hafa í bænum þó bæjarstjórinn telji annað. Aðrir voru bjartsýnni eftir vilyrði um nýja vinnu, t.a.m. Marta Baldvinsdóttir. Hún segist vera búin að fá vinnu í fiski Stefánía Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir lokunina hafa verið yfirvofandi í töluverðan tíma. Reynt hafi verið að bjarga fyrirtækinu en það ekki gengið eftir. Því hafi verið ákveðið í samráði við viðskiptabanka fyrirtækisins og hollenska eigendur þess að hætta allri vinnslu. Sjálf hefur hún fengið vilyrði fyrir nýrri vinnu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×