Ráðherrar kannast ekki við tafir vegna lögreglurannsóknar Erla Hlynsdóttir skrifar 23. febrúar 2012 19:13
Í tímaritinu Nýju Lífi eru birt kynferðisleg bréf sem Jón Baldvin Hannibalsson fyrrum ráðherra og sendiherra sendi systurdóttur eiginkonu sinnar. Stúlkan kærði Jón en málið var fellt niður. Tveir fyrrverandi ráðherrar hafna því í samtali við fréttastofu að hafa tafið rannsókn málsins. Nýtt líf kom út í dag og er strax uppselt hjá útgefanda. Þar er rædd við Guðrúnu Harðardóttur sem er fædd árið 1984 og er systurdóttir Bryndísar Schram eiginkonu Jóns. Árið 2005 lagði hún fram kæru þar sem hún sakaði hann um kynferðisbrot gegn sér. Hún var fjórtán ára þegar fyrstu bréfin voru skrifuð en sautján þegar hún fékk þau síðustu. Hluta bréfanna skrifar Jón Baldvin á bréfsefni sendiráðs Íslands í Washington þar sem hann starfaði sem sendiherra. Þá sendi hann stúlkunni bók sem hann sagði hafa vakið losta hjá eiginkonu sinni. Í blaðinu er einnig viðtal við Guðrúnu þar sem hún segist hafa orðið verulega hrædd þegar henni bárust síðustu bréfin. Guðrún segir í Nýju lífi að niðurfelling málsins hafi verið sjokk og að hún hafi misst alla trú á íslensku réttarkerfi. Seinni bréfin sendi Jón Baldvin í skóla Guðrúnar en ekki heim til hennar. Neðanmáls í einu bréfanna biður Jón Baldvin Guðrúnu um að halda bréfunum leyndum þar til fimmtíu árum eftir þeirra dag. Við lögreglurannsókn var sent erindi til utanríkisráðuneytis til að fá upplýsingar um lög um blygðunarkennd í öðrum löndum, en Guðrún fékk bréf til Venesúela þar sem hún var skiptinemi, frá Jóni í Bandaríkjunum. Í Nýju lífi segir að þar hafi málið tafist í heilt ár, þrátt fyrir ítrekun. Geir Haarde var utanríkisráðherra þegar erindið barst til ráðuneytisins í mars 2006. Hann segir í skriflegu svari til fréttastofu í dag að hann muni ekki til að hafa séð umrætt bréf og hann geti því ekki skýrt hvers vegna afgreiðsla þess tafðist. Valgerður Sverrisdóttir tók við utanríkisráðuneytinu þá um sumarið. Hún segir í samtali við fréttastofu að hún muni ekki til þess að komið inn á hennar borð sem ráðherra og hún hafnar því að hafa tafið það. Þá leitaði fréttastofa skýringa hjá utanríkisráðuneytinu á þeim fullyrðingum sem fram koma í greininni. Þar fengust þar fengust þau svör að málið væri í skoðun. Sem kunnugt er starfaði Jón Baldvin fyrir utanríkisráðuneytið í 18 ár og var lengi utanríkisráðherra. Í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag biðst Jón opinberlega afsökunar þar sem hann segir meðal annars að öllum verði okkur á í lífinu. Í samtali við fréttastofu í dag sagðist Jón Baldvin ekki hafa lesið Nýtt líf, vildi ekki veita viðtal, en sagði þó að í blaðinu væri ranglega haldið fram að hann hefði keypt vændiskonur.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira