Upplýsingar um leiguverð verða birtar mánaðarlega 23. febrúar 2012 16:34
Þjóðskrá Íslands birtir í fyrsta sinn á morgun upplýsingar um húsaleigu eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu og hyggst hér eftir birta mánaðarlega leiguverð og vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu. Í sameiginlegri tilkynningu frá stofnununum segir að á síðustu mánuðum hafi verið haft samstarf um skráningu upplýsinga um leiguverð úr þinglýstum leigusamningum. Hingað til hafi Þjóðskrá aðeins birt upplýsingar um fjölda leigusamninga sem þinglýst er í hverjum mánuði en samkomulag við Íbúðalánasjóð um kostun skráningar gerir kleift að skrá líka fjárhæð húsaleigu, staðsetningu og eiginleika fasteignar. „Lokið er skráningu á öllum þinglýstum leigusamningum um íbúðarhúsnæði frá 1. janúar 2011. Upplýsingar úr þessum gögnum verða birtar í töflu sem sýnir meðalleiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna og birt verður vísitala fyrir leiguverð á höfuðborgarsvæðinu." „Þjóðskrá Íslands hefur um nokkurt skeið haft áhuga á að safna með kerfisbundnum hætti upplýsingum um leiguverð íbúðarhúsnæðis, líkt og gert hefur verið fyrir kaupverð. Markmið skráningarinnar er að treysta undirstöðu fasteignamats og efla upplýsingagjöf um leigumarkað. Með samningi við Íbúðalánasjóð um að sjóðurinn kosti uppsetningu leiguskráningarkerfis og skráningar þinglýstra leigusamninga 2011 og 2012 verður þetta verkefni að veruleika. Hér eftir mun Þjóðskrá birta mánaðarlega upplýsingar um leiguverð. Von okkar er að með því aukist gegnsæi og skilvirkni á þessum mikilvæga markaði," segir Haukur Ingibergsson forstjóri Þjóðskrár Íslands. „Íbúðalánasjóður er einn helsti lánveitandi til leigufélaga íbúðarhúsnæðis og hefur veitt lán til um ellefu þúsund leiguíbúða. Sökum yfirstandandi efnahagsþrenginga hefur sjóðurinn að auki eignast um 700 fasteignir sem hann leigir út. Með vinnslu þinglýstra leigusamninga er kominn traustur grunnur fyrir greiningar Íbúðalánasjóðs á rekstrarforsendum þeirra leigufélaga sem sjóðurinn lánar. Að mati Íbúðalánasjóðs hefur skortur á áreiðanlegum leiguverðsupplýsingum lengi staðið leigumarkaði fyrir þrifum. Því var gengið til samvinnu við Þjóðskrá Íslands um að færa þetta til betri vegar. Þetta samstarf um upplýsingaöflun á húsnæðismarkaði er mikilvægur þáttur í hlutverki Íbúðalánasjóðs og styður við frekari greiningarvinnu sjóðsins á sviði húsnæðismarkaðar. Áreiðanlegar upplýsingar um leiguverð koma landsmönnum öllum til góða," segir Sigurður Erlingsson framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira