Innlent

Rannsókn á nauðgunarmálum lokið

Egill "Gillzenegger“ Einarsson
Egill "Gillzenegger“ Einarsson mynd úr safni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á tveimur nauðgunarkærum á hendur Agli „Gillz" Einarssyni.

Þetta staðfestir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar, í samtali við mbl.is.

Málið hefur nú verið sent til ákærusviðs lögreglunnar sem mun taka ákvörðun um það hvenær það verði sent til ríkissaksóknara. Það er svo ríkissaksóknari sem ákveður hvort að gefin verði út ákæra í málinu.

Egill var kærður ásamt unnustu sinni í lok nóvember í fyrra fyrir nauðgun á heimili þeirra í Kópavogi. Hann var svo aftur kærður fyrir nauðgun í janúar á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×