Talsverður áhugi á listaverkum eftir Sævar Cieselski Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 23. febrúar 2012 19:45
Málverk eftir Sævar Cieselski er nú á vefuppboði hjá Gallerí Fold. Verkið er selt ásamt verkum nokkura þekktustu listamanna landsins en vefuppboðin hafa gefið nýjum og óþekktum listamönnum tækifæri. Gallerí Fold byrjaði fyrir tæpu ári síðan að halda uppboð á netinu, þar geta áhugasamir kaupendur skoðað málverk og listmuni og boðið í rafrænt. Uppboðin standa í tíu daga og hafa viðtökurnar verið góðar. „Það eru nýjir viðskiptavinir, það er fullt af fólki sem hefur aldrei boðið áður og það kemur síðan á hefðbundin uppboð það kviknar áhugi hjá þeim," segir Jóhann Ágúst Hansen, listmunasali. Nýjasta uppboðið hófst um helgina og er þar að finna verk eftir marga þekkta listamenn svo sem Louisu Matthíasdóttur og Ásgrím Jónsson en einnig óþekktari listamenn svo sem Sævar Cieselski einn af sakborningunum í Geirfinnsmálinu sem lést af slysförum í Danmörku á síðasta ári. „Hann var að vinna með airbrush tækni og myndi vera skilgreindur sem áhugamálari, var ekki lærður myndlistarmaður eða þess háttar," segir Jóhann Ágúst. Sævar málaði nokkur verk segir Jóhann en þetta er í fyrsta sinn sem verk hans er boðið á uppboði og viðtökurnar hafa verið góðar. „Um leið og uppboðið fór í loftið, á netinu, þá komu boð í það alveg frá fyrstu mínútu, það er komið þrjátíu þúsund núna sem er hærra en margir þekktari listamenn eru með," segir Jóhann Ágúst. Aðspurður hvort það sé nafnið sem heilli svarar Jóhann: „Ég held það, það er held ég frekar nafnið heldur en gæði listaverksins."
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira