Braust inn og barði húsráðanda 19. maí 2007 18:47
Karlmaður á þrítugsaldri var í gær úrskurðaður í viku gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar á uppstigningardag. Maðurinn er grunaður um að hafa brotist sér leið inn á heimili við Skólavörðustíg og gengið í skrokk á húsráðanda sem var þar í fasta svefni. Mennirnir tveir eru málkunnugir. Hinn grunaði ku hafa heimsótt húsráðanda fyrr um morguninn í leit að fyrrverandi kærustu sinni en ekki haft erindi sem erfiði. Hann virtist þá reiður og afbrýðissamur og grunaði manninn um að slá sér upp með sinni fyrrverandi. Það var svo um klukkan ellefu sem hinn grunaði snéri aftur. Hann hringdi þá á öllum bjöllum og beið þar til honum var hleypt inn í stigaganginn. Þegar þangað var komið braust hann inn í íbúðina, fann þar húsráðanda sofandi og gekk í skrokk á honum. Það var svo rétt upp úr klukkan tvö á uppstigningardag sem nágranni varð þess var að brotist hefði verið inn í íbúðina. Þegar hann aðgætti málið betur sá hann húsráðanda þar sem hann lá meðvitundarlaus í blóði sínu. Að sögn var aðkoman skelfileg. Nágranninn hringdi strax á lögreglu sem flutti manninn á slysadeild. Maðurinn er mjög illa farinn og er til að mynda með opið nefbrot, kinnbeinsbrotinn, brákaður á kjálka og bólginn og blár. Maðurinn sem grunaður er um verknaðinn var í gær úrkurðaður í vikugæsluvarðhald. Að sögn lögreglu er rannsókn málsins á frumstigi en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hinn grunaði ekki játað á sig verknaðinn.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira