Viðsnúningur hjá sveitarstjórn Flóahrepps Björn Gíslason skrifar 15. nóvember 2007 10:48 Urriðafoss í Þjórsá.
Sveitarstjórn Flóahrepps ákvað á fundi sínum í gær að auglýsa tillögu að aðalskipulagi fyrrum Villingaholtshrepps þar sem gert er ráð fyrir Urriðafossvirkjun. Þetta er þvert á það sem sveitarstjórnin ákvað í sumar en í drögum að aðalskipulagi sem þá voru kynnt var var ekki gert ráð fyrir virkjuninni. Tíðindin í sumar komu Landsvirkjunarmönnum, sem hyggjast reisa virkjunina, á óvart og hafa staðið yfir viðræður á milli sveitarstjórnarinnar og fyrirtækisins um móvægisaðgerðir vegna virkjunarinnar. Sveitarstjórnin hélt í júní í sumar kynningarfund fyrir íbúa þar sem kynntar voru tvær tillögur að aðalskipulagi, önnur með virkjun og hin án hennar. Sveitarstjórnin ákvað svo að fresta því að taka ákvörðun um aðalskipulagið um óákveðinn tíma á meðan unnið væri áhættumat vegna virkjunarinnar og viðræður við Landsvirkjun um mótvægisaðgerðir yrðu til lykta leiddar. Áhættumatið var kynnt í síðasta mánuði en í því kemur fram að ef stífla Urriðafossvirkjunar brestur sé hætta á að flóð breiðist út afar takmörkuð og að Þjórsá haldist að mestu í farvegi sínum. Viðræðum við Landsvirkjun um mótvægisaðgerðir er einnig lokið en þar er meðal annars gert ráð fyrir að fyrirtækið kosti lögn nýrrar aðveitu vatnsveitu sveitarfélagsins, að vegakafli um sveitarfélagið að Gaulverjabæ verði endurbyggður, að aðstaða fyrir ferðamenn verði byggð upp í landi Þjótanda þar sem virkjanir á vatnasviði Þjórsár verða kynntar, gripið verði til mótvægisaðgerða vegna lífríkis Þjórsár og að GSM-símakerfi sveitarfélagsins verði endurbætt. Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti samhljóða að auglýsa tillögu að aðalskipulagi fyrrum Villingaholtshrepps með Urriðafossvirkjun en bendir á að ákvörðunin feli ekki í sér ákvörðun um framkvæmdaleyfi vegna Urriðafossvirkjunar. Þá leggur sveitarstjórn áherslu á að Landsvirkjun nái samningum við landeigendur verði af fyrirhugaðri virkjun eftir því sem segir á vef sveitarfélagsins. Urriðafossvirkjun er sú stærsta af þremur virkjunum sem Landsvirkjun áformar í neðri hluta Þjórsár, 125 megavött af afli. Henni fylgir jafnframt stærsta uppistöðulón þessara virkjana, nefnt Heiðarlón.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira