Innlent

Áform um a.m.k. tvær kílsilverksmiðjur á landinu

Frá Helguvík.
Frá Helguvík. MYND/Pjetur

Hugmyndir eru uppi um að reisa að minnsta kosti tvær kísilhreinsunarverskmiðjur hér á landi, aðra í Þorlákhsöfn en hina í Helguvík. Enn á þó eftir að ganga frá samningum um orkusölu vegna þeirra.

Fram hefur komið í fréttum að Landsvirkjun hyggist ekki selja orku til nýrra álvera á suðvesturhorninu en ætli að ræða við fyrirtæki sem hafa hug á að reisa netþjónabú eða hreinsunarverskmiðju fyrir kísil sem notaður verður í sólarrafhlöður.

Fréttastofa Útvarps greindi frá því í vikunni að Landsvirkjun ætti að líkindum í viðræðum við bandarískt fyrirtæki, Hemlock Semiconductor Corp, um að selja því orku í kísihreinsunarverksmiðju sem líklegast myndi rísa í Þorlákshöfn. Þar fengju allt að 500 manns vinnu.

Annað félag, Tomahawk Development, sem er í eigu danskra og íslenskra aðila, hefur einnig hug á að reisa kísilverksmiðju á Íslandi og hefur þegar tryggt sér lóð undir starfsemina.

Eftir því sem fram kemur í matsskýrslu sem Skipulagsstofnun hefur samþykkt með skilyrðum, er ætlunin að framleiða þar kísil og stendur til að stofna nýtt íslenskt fyrirtæki, Icelandic Silicon Corporation, sem reka mun verksmiðjuna.

Áætlanir fyrirtækisins gera ráð fyrir að framleiðslan verði þróuð smám saman þannig að í framhaldinu verði farið í framleiðslu á mjög hreinum kísil fyrir sólarrafhlöður og að lokum í framleiðslu á slíkum rafhlöðum. Þær á að selja til Þýskaland, Suður-Evrópu og Bandaríkjanna.

Áætlanir fyrirtækisins gera ráð fyrir að 50 þúsund tonn af kísil verði unnin í verksmiðjunni á ári og að þar muni starfa um 90 manns. Fyrirtækið á nú í viðræðum við Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja um orkukaup vegna verksmiðjunnar, segir Magnús Garðarsson, einn af eigendum Tomahawk Development.

Félagið vinnur enn fremur að frummatsskýrslu um umhverfisáhrif vegna framkvæmdanna og reiknar Magnús með að ef allt gangi að óskum geti framkvæmdir við verksmiðjuna hafist á næsta ári. Verksmiðjan verði svo komin í full afköst haustið 2010.

Tomahawk skortir hins vegar losunarheimildir vegna gróðurhúsalofttegunda á tímabilinu 2008 til 2012 en umhverfisráðuneytið úthlutaði þeim nú í haust. Tomahawk sótti um losunarheimildir en að mati nefndar á vegum umhverfisráðuneytisins voru ekki forsendur til að úthluta kvóta til félagsins þar sem mikil óvissa væri enn um framgang verksins, s.s. um orkuöflun og mat á umhverfisáhrifum. Var því úthlutun til þess sett í biðstöðu en henni ekki hafnað. Aðeins fyrirtæki sem þegar eru starfandi fengu losunarkvóta í haust.

„Við erum að vinna að því bæta við framleiðslu á metanóli. Hún færi þannig fram að koltvísýringur frá verksmiðjunni yrði notaður til að framleiða metanól í eldsneyti. Þá væri ekki þörf á útblásturskvóta," segir Magnús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×