Orkuveitupeningarnir borga sérfræðikostnað 15. nóvember 2007 11:18 Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstóri í Sveitarfélaginu Ölfusi, segir af og frá að þær 45 milljónir sem Orkuveita Reykjavíkur greiðir sveitarfélaginu í tengslum við virkjun á Hellisheiði renni í vasa sveitarstjórnarmanna. Peningarnir greiðast á sex ára tímabili og er þeim ætlað að standa straum af sérfræðikostnaði sem fellur til við skipulagningu málsins. „Það var gerður samningur við OR um ýmis málefni í apríl síðastliðinn," segir Ólafur Áki í samtali við Vísi Hann segir samninginn vera sambærilegan við samninga Landsvirkjunar við sveitarfélög á Austurlandi á sínum tíma. „Svona framkvæmdir kalla á meira álag og umsýslu fyrir nefndarfólk hér auk þess sem við þurfum að kaupa ráðgjöf frá ýmsum sérfræðingum. Við fáum til okkar sérfræðinga nær daglega, lögmenn, náttúrufræðinga og sérfræðinga í vatnsbúskap. Þessir peningar standa straum af þeim kostnaði," segir Ólafur Áki og bætir því við að peningarnir renni ekki í vasa sveitarstjórnarmanna.Í frétt á heimasíðu sveitarfélagsins frá því í apríl í fyrra er sagt að til að mæta „auknum umsvifum á bæjarstjórn, bæjarstjóra og skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss á meðan framkvæmdir við virkjanir á Hengilsvæðinu standa yfir, greiðir Orkuveita Reykjavíkur sveitarfélaginu kr. 45 milljónir á sex árum." Fréttablaðið greinir frá þessu á forsíðu í dag en ekki kemur fram hvert peningarnir fara.Þá segir einnig í blaðinu að Orkuveitan lýsi Þrengslaveg fyrir sveitarfélagið. Ólafur segir rétt að OR muni sjá um framkvæmdina en að sveitarfélagið greiði fyrir hana samkvæmt samningi. Þá segir einnig í fréttinni að OR hafi tekið að sér að reisa nýja fjárrétt og hesthús fyrir Ölfusinga. „Þeir tóku réttina í burtu þegar framkvæmdir hófust og því er ekki nema eðlilegt að þeir standi straum af kostnaðinum við að byggja nýja."
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Barn réðst með belti á önnur börn Innlent NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Fleiri fréttir Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Sjá meira