Innlent

Bifreið fór fram af Elliðaárbrú

Bifreið hrapaði fimm metra niður í gegnum vegrið á brúnni yfir Elliðaár á ellefta tímanum í gærkvöld og lenti á göngustíg við árnar. Bifreiðin kom úr áttinni frá Breiðholti og var á leið inn á Vesturlandsveg til austurs þegar ökumaður missti stjórn á henni. Hún snerist á götunni, rann skáhallt yfir þrjár akreinar, fór í gegnum vegrið og hrapaði fimm metra niður og lenti á þakinu. Einn maður var í bílnum og var hann fluttur á slysadeild en hann var ekki með alvarlega áverka. Bifreiðin er mikið skemmd. Myndin er úr myndasafni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×