Illviðri tefja flutningaskip svo sólarhringum skiptir 24. desember 2014 12:00 Ólafur William Hand
samgöngur Vörugámar hafa tapast af tveimur skipum Eimskips á siglingaleiðinni á milli Íslands og Evrópu að undanförnu. Sjómenn muna vart annað eins sjólag þar sem hvert illviðrið hefur rekið annað frá því í nóvember. Persónulegir munir, eins og búslóðir, hafa ekki tapast við óhöppin, er talið víst. Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, segir að 20 tapaðir vörugámar segi aðeins söguna að litlu leyti hvað varðar þær aðstæður sem sjómenn á flutningaskipum á siglingaleiðinni eru að vinna við. „Þetta er eiginlega búinn að vera hreinn hryllingur frá því í byrjun nóvember. Veturinn byrjaði með djúpum lægðum sem skiluðu hörðum austanáttum en lagðist svo í hina áttina. Niðurstaðan er sú að svæðið á milli Færeyja og Íslands hefur verið eins og sjóðandi nornapottur, eins og skipstjórnarmennirnir lýsa þessu,“ segir Ólafur og bætir við að ölduhæð hafi dögum saman verið tíu til tólf metrar – eða eins og reisuleg skrifstofubygging. „Menn geta kannski gert sér í hugarlund þessar vinnuaðstæður þar sem útilokað er að sofa sólarhringum saman, en heilt yfir hafa skipin verið einum til tveimur sólarhringum lengur á leiðinni vegna þessara aðstæðna,“ segir Ólafur. Það hafsvæði sem er sýnu verst viðureignar er þar sem gámarnir fóru í sjóinn af Dettifossi, eða 70 til 80 sjómílur norðaustur af Færeyjum. Annað skip Eimskips, Goðafoss, missti fyrr í þessum mánuði fjóra gáma í sjóinn á svipuðum stað. Ólafur segir að í tilfelli Goðafoss hafi engar persónulegar eignir fólks tapast, og talið að það sama eigi við um gámana 20 sem nú eru farnir veg allrar veraldar. Þó eigi eftir að ganga úr skugga um það með óyggjandi hætti þegar Dettifoss kemur til heimahafnar. „Það sem er þó mest um vert er að engin slys hafa orðið á áhöfnum skipanna, en um borð í Goðafossi og Dettifossi eru 13 manns í áhöfn. Því má þakka hversu vel menn eru þjálfaðir og leggja ekki út í neina óvissu – eins og að senda menn út á dekk þegar aðstæður eru hvað erfiðastar. Betri menntun sjómanna, sem aðrar þjóðir líta til, hefur skilað því að alvarlegum slysum hefur fækkað. Það er nefnilega ekkert sjálfgefið að sigla hér á milli á vetrum eins og þessum og skila öllum heilum í höfn. Það má þakka reynslu þeirra og menntun, og erfitt fyrir fjölskyldur þessara manna að vita af þeim við vinnu í þessum aðstæðum,“ segir Ólafur. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira