Ekki refsað þrátt fyrir grófar hótanir 8. desember 2008 16:38
Héraðsdómur Suðurlands tók fyrir í dag mál Barkar Birgissonar sem ákærður var fyrir 14 brot gegn valdsstjórninni. Hann var ákærður fyrir að hafa haft í alvarlegum hótunum við starfsfólk Litla-Hrauns og ættingja þeirra. Börkur var fundinn sekur fyrir nokkra liði ákærunnar en þrátt fyrir það var honum ekki gerð sérstök refsing. Börkur var ákærður fyrir að hafa í mars 2006 og frá því í ágúst til nóvember í fyrra ítrekað hótað fangavörðum, öðru starfsfólki fangelsins og fjölskyldum þeirra líkamsmeiðingum og dauða. Í dómnum segir að ljóst sé að eitthvað hafi farið verulega úrskeiðis í samskiptum Barkar og starfsmanna fangelsins. Jafnframt tók dómurinn tillit til þess að nokkuð liðið var liðið frá brotunum og ekki hafi verið hægt að líta fram hjá því að ákærði hafi sætt margvíslegum agaviðurlögum í fangelsinu vegna brota sinna. Í janúar 2005 var Börkur dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps og fjölda líkamsárása. Börkur réðst á annan mann með exi á veitingastaðnum A. Hansen árið 2004 og veitti honum sár. Börkur hafði auk þess rifbeinsbrotið tengdaföður sinn og ráðist á fjóra aðra karlmenn.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira