Innlent

Vilja óskerta fjölmiðlaumfjöllum um íþróttir

Ólafur Rafnsson, formaður ÍSÍ.
Ólafur Rafnsson, formaður ÍSÍ.

Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands skorar á stjórn RÚV að sjá til þess að umfjöllun og fréttaflutningur af íþróttum skerðist ekki. Þetta kemur fram í ályktun sem framkvæmdastjórnin samþykkti á dögunum. Þar er bent á að umfjöllun um íþróttir sé lögbundin skylda RÚV. Í gegnum árin hafi RÚV sinnt umfjöllun um íþróttir af miklum metnaði og hafi mikilvægu hlutverki að gegna við að miðla fréttum af íþróttaviðburðum, innlendum sem erlendum.

„Sú ráðstöfun að segja upp fjórum af sjö íþróttafréttamönnum ber ekki vott um að ætlunin sé að halda áfram á þeirri braut. Telur framkvæmdastjórn ÍSÍ að með þeim aðgerðum og aðgerðum fyrr á þessu ári sé vegið að íþróttahreyfingunni í landinu," segir í ályktun framkvæmdastjórnarinnar.

Í pistil sem Ólafur Rafnsson, formaður ÍSÍ, skrifar á vefsíðu sambandsins segir hann að íþróttaumfjöllun sé líklega meðal ódýrasta fréttaefnis fjölmiðla í hlutfalli við lestur, hlustun og áhorf. Stórir íþróttaviðburðir og umfjöllun um fremsta íþróttafólk Íslendinga sé meðal vinsælasta efnis sem finnist í fjölmiðlum. Framhjá því verði ekki litið að íþróttaumfjöllun sé stór hluti af daglegri fjölmiðlaneyslu mikils hluta þjóðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×