Innlent

Innbrotsþjófur gripinn glóðvolgur

Brotist var inn í fyrirtæki í Hafnarfirði í nótt og fór þjófavarnakerfi í gang. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að þjófurinn var búinn að tína saman talsvert af verkfærum og öðrum verðmætum, en hann var hvergi að sjá.

Við nánari leit fanst hann í hnipri undir borði og var handtekinn. Um svipað leyti var tilkynnt um að bíl hafi verið stolið í Hafnarfirði. Lögreglumenn fundu hann yfirgefinn skömmu síðar, en gátu rakið spor þjófsins í nýföllnum snjónum, sem leiddi til þess að hann var handtekinn. Hann er einnig grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.

Þá var brotist inn í fyrirtæki í Þingholtunum í nótt og þaðan stolið litlum peningaskáp. Þjófurinn og skápurinn eru ófundnir en ekki liggur fyrir hversu mikil verðmæti voru í skápnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×