Innlent

Ferðalangarnir væntanlegir frá Kúbu

Gissur Sigurðsson skrifar

Íslenskur ferðamannahópur, sem var á heimleið frá Kúbu í gær en tafðist í Halifax í Kanada, er væntanlegur til landsins nú í morgunsárið, samkvæmt tilkynningu frá Heimsferðum.

200 manns eru í hópnum en þegar vél þeirra lenti í Halfax til að taka eldsneyti sáu flugvallarstarfsmenn dæld á skrokki hennar sem rekja má til þjónustubíls. Farþegar og áhöfn voru vistuð á hóteli á meðan á viðgerð stóð.

Aukavél frá North American Airlines var fengin til að fljúga með hópinn til Íslands og átti vélin upphaflega að lenda um hálfátta í morgun. Hún lendir hins vegar í Keflavík klukkan hálfellefu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×