Mátti grafa í sundur veg 26. nóvember 2007 11:56
Héraðsdómur Suðurlands sýknaði dag karlmann af ákæru um eignaspjöll og brot á vegalögum með því að fela verktaka að grafa í sundur veg í sumarbústaðalandi í Grímsnes- og Grafninshreppi.Maðurinn var ákærður fyrir að hafa látið verktakann grafa sundur svokallaðan Rimamóaveg á landspildu milli Þórisstaða og Reykjaness í Grímsnes- og Grafningshreppi. Með þessu komst eigandi annarrar landspildu ekki að landi sínu.Fram kemur í dómnum að verktakinn hafi verið að vinna við veginn að ósk félags sumarbústaðaeigenda í Þórisstaðalandi. Vegurinn hafi verið grafinn í sundur til þess að setja hlið á hann en ekki til þess að skemma hann. Bent er á að ekki sé ágreiningur um að Rimamóavegur sé einkavegur í skilningi vegalaga og að viðhald vegarins sé á hendi sumarbústaðaeigenda við Rimamóaveg.Þá er bent á að maðurinn sem kvartaði yfir því að hafa ekki komist að landspildu sinni sé ekki aðili að félaginu og þá nái lóð hans ekki inn á það svæði sem Rimamóavegur liggi. Því hefðu framkvæmdirnar ekki farið fram innan landareignar hans.Komst dómurinn að því að hinn ákærði hefði verið að vinna að framkvæmdum við einkaveg í umboði félags sumarbústaðaeigenda og það bryti ekki gegn lögum. Var maðurinn því sýknaður í málinu.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira