Læknar, dómarar og flugumferðarstjórar launahæstir 26. nóvember 2007 18:43
Læknar, dómarar og flugumferðarstjórar eru launahæstu stéttir hjá hinu opinbera, samkvæmt tölum kjararannsóknarnefndar opinberra starfsmanna. Leikarar og starfsmenn Sinfóníuhljómsveitarinnar eru hins vegar í hópi þeirra sem bera minnst úr býtum. Læknar eru tekjuhæsta stétt opinberra starfsmanna þegar horft er til heildarlauna en ef eingöngu er tekið mið af dagvinnulaunum færast dómarar í efsta sætið. Flugumferðarstjórar eru svo í þriðja sæti en rétt er að taka fram að æðstu embættismenn, eins og ráðherrar, eru ekki með í þessum tölum. Heildarmánaðarlaun upp á nærri 900 þúsund krónur sætja læknana í efsta sætið en dagvinnulaun þeirra fyrstu sex mánuði ársins voru hins vegar 475 þúsund að meðaltali. Dómarar höfðu að meðaltali um 840 þúsund krónur í heildarlaun á mánuði en um 580 í dagvinnulaun. Flugumferðarstjórar voru með um 780 þúsund í heildarlaun en um 440 fyrir dagvinnuna. Athygli vekur að þessar þrjár stéttir skera sig verulega úr en þar á eftir koma prófessorar, prestar og verkfræðingar, með heildarlaun á bilinu 500 til 550 þúsund á mánuði. En þá er að sjá listann yfir launalægstu stéttir hins opinbera. Það eru félagsráðgjafar, leikskólakennarar, grunnskólakennarar, leikarar, almennir starfsmenn stjórnarráðs, starfsmenn sinfóníunnar og á botninum sitja þeir sem eru í starfsmannafélagi ríkisstofnana, en það eru almennir starfsmenn hjá stofnunum og fyrirtækjum ríkisins. Heildarlaun þeirra eru um 280 þúsund á mánuði að jafnaði en dagvinnulaun um 205 þúsund að jafnaði. Starfsmenn Sinfóníunnar eru með næstlægstu heildarlaunin en færu upp fyrir grunnskólakennara ef aðeins væri horft á dagvinnulaun. Að lokum skulum við sjá laun nokkurra fjölmennra hópa. Lögfræðingar, viðskipta- og hagfræðingar, hjúkrunarfræðingar og lögreglumenn eru með heildarlaun á bilinu 440 til 470 þúsund á mánuði en bæði hjúkrunarfræðingar og lögreglumenn eru hins vegar með verulega minna fyrir dagvinnuna en hinir. Framhaldsskólakennarar og náttúrufræðingar eru með í kringum 400 þúsund í heildarlaun en neðst á þessum lista eru sjúkraliðar, með 335 þúsund að jafnaði í heildarlaun en 217 þúsund í dagvinnulaun, en ef eingöngu væri horft til dagvinnu væru sjúkraliðar næstlaunalægsti hópurinn.
Mest lesið Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Innlent Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Innlent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Erlent Þjökuð af samviskubiti meðan pabbinn bíður eftir plássi Innlent Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Erlent Guðmundur Ingi gefur ekki kost á sér Innlent Fimm sóttir upp á Fjarðarheiði í nótt Innlent Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Innlent Stillir sér upp á miðjunni Innlent „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Erlent Fleiri fréttir Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Fólk sólgið í bollur og mjög opið fyrir nýjungum Óbreytt ástand á Landspítala og svifrykið hrellir borgarbúa Kallar eftir rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Guðmundur Ingi gefur ekki kost á sér Þjökuð af samviskubiti meðan pabbinn bíður eftir plássi Stillir sér upp á miðjunni Mikill meirihluti vill banna sölu á orkudrykkjum til barna Fimm sóttir upp á Fjarðarheiði í nótt Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Happdræti Háskólans varar við svikurum Íhugar að leggja á sykurskatt „Framsókn styður ekki bókun 35“ Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Sinueldur við Framheimilið Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Gómaður með hamar, hnífa og þýfi „Eins og knattspyrnuþjálfari sem er á bekknum“ „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Áþreifanleg eftirvænting eftir nýja formanninum Formaður Bændasamtakanna hefur aldrei orðið hræddur við tré „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing „Við erum áratugum of sein“ „Margt jákvætt að gerast en allir á tánum“ Mikil spenna fyrir formannskjör Framsóknarflokksins „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Öryggi, heilbrigðismál, Evrópa og efnahagur á Sprengisandi Sjá meira