Innlent

Friðarsvifflugan enn ógreidd í Nauthólsvík

Borgarstjóri afhenti Rudolf Schuster, lengst til vinstri, sviffluguna, að viðstöddum forkólfum Svifflugsfélagsins.
Borgarstjóri afhenti Rudolf Schuster, lengst til vinstri, sviffluguna, að viðstöddum forkólfum Svifflugsfélagsins.
Sviffluga sem Rudolf Schuster, talsmaður Friðarstofnunar Reykjavíkur, fékk að gjöf við komu til landsins í fyrra er enn í geymslu Svifflugsfélagsins ári síðar. Borgarstjóri afhenti sviffluguna en enginn veit hver á að borga fyrir hana.

Enginn veit hver á að borga fyrir svifflugu sem fyrrverandi borgarstjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, afhenti Rupert Schuster, nýskipuðum talsmanni Friðarstofnunar Reykjavíkur, í október í fyrra. Svifflugan er í geymslu Svifflugsfélags Íslands í Nauthólsvík, en oft hefur verið brotist þar inn og í eitt skipti borinn eldur að skýlinu.

Í október í fyrra kynnti Vilhjálmur hugmyndir um Friðarstofnun Reykjavíkur, í tilefni af tuttugu ára afmæli leiðtoga­fundar Ronalds Reagan og Mikhails Gorbatsjov í Höfða. Hann bauð Rudolf Schuster, fyrrverandi forseta Slóvakíu, að fara fyrir stofnuninni og vinna að undirbúningi hennar.

Í tilefni af komu Schusters til landsins afhenti Vilhjálmur honum gamla svifflugu af gerðinni Ka-8. Schuster er mikill áhugamaður um flug og rekur mikið flugminjasafn í Slóvakíu. Schuster fékk öll skjöl um sviffluguna í hendur og ekki er hægt að fljúga henni án þeirra.

Jón Kristinn Snæhólm, aðstoðar­maður Vilhjálms, hafði milligöngu um sviffluguna. Hann segir borgarstjóra ekki hafa gefið sviffluguna heldur eingöngu afhent hana. „Þetta var algjörlega að mínu frumkvæði og ótengt borgarstjóranum,“ segir Jón Kristinn. „Þetta fór aldrei fyrir borgarráð og það stóð aldrei til.“

Jón Kristinn segir sviffluguna vera verðlausa og að aldrei hafi verið rætt um neina borgun. Hann telur hana í mesta lagi kosta hundrað þúsund krónur. Jón Kristinn segist hafa fengið tvö fyrirtæki til að borga flutninginn til Slóvakíu og að ekkert hindri að hún geti farið þangað.

Kristján Sveinbjörnsson, formaður Svifflugsfélags Íslands, segir félagið hafa metið sviffluguna á 300 til 400 þúsund krónur. Vélin sé formlega í eigu tveggja félagsmanna.

Í ársskýrslu Svifflugsfélagsins stendur að svifflugan sé „gefin af borginni“ og að uppgjör vegna hennar muni fara fram í tengslum við samning um nýtt húsnæði Svifflugsfélagsins, sem borgin hafi lofað að útvega því.

steindor@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×