Hálfur milljarður í landnámsbæinn 13. október 2005 15:31
Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna landnámsbæjarins við Aðalstræti er kominn í rúmlega 320 milljónir króna. Í bréfi innri endurskoðunardeildar sem lagt var fyrir borgarráð kemur fram að á þessu ári og því næsta verði lagðar 207 milljónir króna til viðbótar í landnámsbæinn. Heildarkostnaður borgarinnar vegna landnámsbæjarins verður því vel yfir hálfan milljarð króna. "Mér finnst þetta gríðarlega mikill kostnaður við þennan skála," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn. "Síðan á eftir að reka þetta og kostnaðurinn á því bara eftir að aukast. Ég er ekki viss um að þeir sem byggðu þennan bæ á landnámstímanum hafi gert ráð fyrir því að borgarsjóður Reykjavíkur ætti eftir að verða fyrir þvílíkum búsifjum vegna hans á 21. öldinni." Í desember seldi borgin fyrirtækinu Stoðum sýningarskálann, sem verður í kjallara hótelsins sem verið er að byggja við Aðalstræti, fyrir 160 milljónir króna. Borgin gerði samning við Stoðir um að leigja kjallarann. Samningurinn er til 25 ára og greiðir borgin 1,7 milljónir króna í leigu á mánuði eða samtals 510 milljónir á 25 árum. Vilhjálmur Þ. segir samninginn óhagstæðan fyrir borgina. Borgin fái vissulega peninginn núna en greiði hann allan til baka og vel rúmlega það. Vilhjálmur Þ. segir að fornleifarnar þurfi náttúrlega ákveðna umgjörð. Kostnaðurinn sé samt kominn fram úr öllu hófi og það lýsi ekki góðri fjármálastjórn. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir að rústirnar séu umfangsmiklar og kostnaður vegna fornleifarannsókna sé almennt mjög mikill. Hún vísar hins vegar gagnrýni Vilhjálms Þ. til föðurhúsanna því heildarkostnaður borgarinnar vegna landnámsbæjarins sé í fullu samræmi við áætlanir. Þá segir hún samninginn við Stoðir vera hagstæðan. Ákveðin hagkvæmni sé fólgin í því að sama fyrirtækið eigi bæði hótelið og sýningarskálann. Borgin muni einnig koma til með að spara fjármuni því Stoðir muni sjá um viðhald skálans.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira