Innlent

Þorgerður Katrín tjáir sig ekki um laun útvarpsstjóra

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagðist ekkert vilja láta hafa eftir sér um laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra. Hún sagði þó að það hefði verið ákvörðun stjórnar Ríkisútvarpsins ohf að ákveða laun útvarpsstjóra og vísaði í Ómar Benediktsson formann stjórnarinnar. Hann sagði í samtali við Vísi fyrr í mánuðinum að samningur um laun Páls væri vel ígrundaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×