Óljóst og loðið hjá kirkjunni 25. október 2007 15:27 Frá Gay Pride göngunni í sumar. MYND/VG
Samþykkt kirkjuþings í morgun um að leyfa prestum að staðfesta samvist samkynhneigðra er loðin og óljós að mati formanns Samtakanna 78. Hann sakar forystu þjóðkirkjunnar um að vilja viðhalda aðskilnaðarstefnu gagnvart samkynhneigðum. „Það er óljóst hvað felst í þessari samþykkt," sagði Frosti Jónsson, formaður Samtakanna 78, í samtali við Vísi. „Það má lesa út úr þessu að prestar fái heimild til að staðfesta samvist ef lögunum verður breytt. Hins vegar er ekki tekin afstaða til þess hvort í þessu felst vígsla eða blessun." Kirkjuþing samþykkti í morgun tillögur Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, um að prestar fái heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra. Í tillögu biskups er þó skýrt tekið fram að þjóðkirkjan ætli sér ekki að breyta afstöðu sinni til hjónbandsins sem eingöngu sáttmáli milli karls og konu. Frosti segir tillögu biskups fyrst og fremst endurspegla þann vilja forystu þjóðkirkjunnar um að samkynhneigðum verði áfram haldið fyrir utan þá stofnun sem hjónabandið er. „Forysta kirkjunnar vill ríghalda í það sem þeir vilja meina að sé hinn hefðbundinn skilningur á hjónabandi og festa þann skilning í sessi. Í þessari tillögu er hins vegar ekki tekinn afstaða til þess hvort stíga eigi það skref til fulls að leyfa prestum að vígja hjónaband samkynhneigðra. Því kemur fátt á óvart í þessu." Yfirlýsingu frá Samtökunum 78 má sjá hér að neðan:
Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Sjá meira