Innlent

Átta jarðskjálftar undir Ingólfsfjalli í nótt

Skjálftarnir voru á tveggja kílómetra dýpi undir Ingólfsfjalli.
Skjálftarnir voru á tveggja kílómetra dýpi undir Ingólfsfjalli.

Átta jarðskjálftar mældust í nótt undir Ingólfsfjalli. Stærstu skjálftarnir mældust rúmlega tveir á Richter og voru þeir á um tveggja kílómetra dýpi. Skjálftarnir fundust vel á Selfossi en þeir riðu yfir á tímabilinu frá klukkan þrjú í nótt og til hálf tíu í morgun. Að sögn Veðurstofu eru skjálftahrinur algengar á þessu svæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×