Innlent

Telja allsherjarverkfall vænlegt

Frá fyrri borgarafundinum í Háskólabíói um daginn.
Frá fyrri borgarafundinum í Háskólabíói um daginn. MYND/Egill

Réttast væri að verkalýðshreyfingin efndi til allsherjarverkfalls til að knýja ríkisstjórnina frá völdum, var ein hugmyndin sem viðruð var á fjölmennum borgarafundi í Háskólabíói í gærkvöldi og tóku margir fundarmanna vel í hugmyndina.

Verkalýðsleiðtogarnir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, og Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins, sem voru á fundinum, töldu að slíkt væri ekki lögleg aðgerð og að verkfallsvopnið væri of dýrmætt til að beita því ólöglega. Fundarmenn gagnrýndu verkalýðsleiðtoga meðal annars fyrir að taka sér ofurlaun og skuldir heimilanna hvíldu greinilega þungt á fundarmönnum. Stóri salur Háskólabíós var nær fullsetinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×