Innlent

Mesta skógareyðing hérlendis af mannavöldum framundan

Áform borgaryfirvalda um að taka skógræktarsvæði á Hólmsheiði undir iðnaðarsvæði fela í sér mestu skógareyðingu af mannavöldum á Íslandi í meira en öld að mati Skógræktarfélags Reykjavíkur.

Skógræktarfélag Reykjavíkur tekur þar með undir álit Skógræktar ríkins sem sömuleiðis hefur gagnrýnt áform borgaryfirvalda. Félagið segir með þessum áformum stefnt að eyðingu hálfrar milljóna trjáplantna. Jarðvegur sé grýttur og því óvinnandi vegur að flytja trén. Þau muni því flest fara forgörðum.

Bent er á að í meira en tvo áratugi hafi stór hluti reykvískra ungmenna plantað trjám þarna, meðal annars á vegum verkefnisins Skólaskóga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×