Háskólasjóður Eimskipafélagsins veitir allt að 60 milljónir í styrki 14. desember 2010 14:36
Á aldarafmæli Háskóla Íslands í upphafi næsta árs verður úthlutað allt að 60 milljónum króna í vísindastyrki til doktorsnema úr Háskólasjóði H/f Eimskipafélags Íslands. Í tilkynningu frá háskólanum segir að ekki hafi verið unnt að úthluta nýjum styrkjum úr sjóðnum undanfarin tvö ár vegna rýrnunar sjóðsins í efnahagshruninu árið 2008. „Ávöxtun sjóðsins hefur verið góð síðastliðin tvö ár sem gerir úthlutun mögulega á næsta ári," segir ennfremur en frestur til að sækja um rennur út 15. janúar næstkomandi. Sjóðurinn var upphaflega settur á laggirnar af Vestur-Íslendingum árið 1964 þegar þeir lögðu til hans hlutabréfaeign sína í Eimskipafélaginu. „Sjóðurinn er nú í vörslu Landsbankans og hefur starfað í núverandi mynd frá árinu 2005 en þá voru gerðar veigamiklar breytingar á fyrirkomulagi hans með það að markmiði að veita styrki til stúdenta í rannsóknatengdu framhaldsnámi við Háskóla Íslands." Fyrsta úthlutun úr sjóðnum eftir þær breytingar fór fram árið 2006 og síðan hafa á sjötta tug doktorsnema á sviðum raunvísinda, hugvísinda, heilbrigðisvísinda, menntavísinda og félagsvísinda stundað rannsóknir við Háskóla Íslands með stuðningi sjóðsins segir ennfremur. „Breytingar hafa verið gerðar á skipan stjórnar sjóðsins og í henni tekur nú sæti fulltrúi Háskóla Íslands. Stjórnina skipa eftir breytingar Gunnar Helgi Hálfdánarson, formaður bankaráðs Landsbankans, Steinþór Pálsson bankastjóri og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands."Skiptir skólann miklu máli Kristín Ingólfsdóttir segir að það skipti skólann miklu máli að hafa öfluga styrktarsjóði að bakhjarli. „Þessi sjóður gefur skólanum færi á að laða til sín úrvalsnemendur með því að bjóða upp á allt að þriggja ára styrki líkt og þekkist hvarvetna við rannsóknaháskóla í nágrannalöndum okkar. Við höfum þegar séð mikinn árangur í sköpun nýrrar og mikilvægrar þekkingar með tilkomu þessara styrkveitinga." Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir samvinnu við Háskóla Íslands afar mikilsverða fyrir bankann og ánægjulegt að geta stuðla að velgengni skólans. „Það er því gott til þess að vita að fjárhagsstaða Háskólasjóðs Eimskipafélagsins er sterk og að ávöxtun hans hefur verið framar vonum það sem af er árinu. Sá árangur gerir sjóðnum kleift að styðja myndarlega við doktorsnema í Háskóla Íslands." Stúdentar sem skráðir eru í doktorsnám við Háskóla Íslands geta sótt um styrki úr sjóðnum. Kennarar og sérfræðingar geta enn fremur sótt um styrki fyrir væntanlega doktorsnema. Sérstök úthlutunarnefnd verður skipuð til að meta umsóknir ásamt vísindanefnd háskólaráðs.
Mest lesið Stúlkan fannst heil á húfi Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Sjá meira