Innlent

Tiltrúin á Hafró minni en nokkru sinni fyrr

Björgólfur Jóhannsson formaður LÍÚ gerði Hafrannsóknarstofnun m.a. að umræðuefni í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ sem nú stendur yfir. Segir hann að að tiltrú manna í sjávarútvegi á niðurstöður og ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar er minni nú en nokkru sinni fyrr. Efasemdir eru um að ástand þorskstofnsins geti verið eins dapurt og nýjasta stofnmat stofnunarinnar segir til um.

"Einnig eru efasemdir uppi um áreiðanleika togararallsins og hvort togstöðvar nái yfir útbreiðslusvæði þorsksins, meðal annars í ljósi vísbendinga um vaxandi þorskgöngur til Færeyja og Grænlands," segir Björgólfur. "Í ár bætist það svo við að rallið fór fram í slæmu veðri á stórum svæðum. Samkvæmt reynslu togarasjómanna ætti þetta að hafa leitt til minni afla í rallinu en ella. Þá er rétt að minnast þess hversu mikið af fiski gekk á hrygningarslóðina á síðustu vetrarvertíð.

Ef til vill á þessi litla tiltrú á stofnmatið ekki að koma mönnum á óvart. Hafrannsóknastofnuninni hefur verið haldið í spennitreyju of lítilla fjárveitinga og svigrúm hennar til að gegna lögbundnu hlutverki sínu með viðunandi hætti er allt of lítið.

Til úrbóta verður að veita umtalsvert meira fé til stofnunarinnar, enda verður hún áfram kjölfestan í hafrannsóknum við Ísland. Jafnframt þarf að endurskipuleggja starfsemina og auka rekstrarhagkvæmni til dæmis með því að skilja rekstur rannsóknarskipa frá öðrum rekstri."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×