Innlent

Tveggja mánaða fangelsi fyrir að stela spritti og lærissneiðum

Andri Ólafsson skrifar
Héraðsdómur við Lækartorg
Héraðsdómur við Lækartorg

Ógæfumaður á sextugsaldri var í dag dæmdur af Héraðsdómi Reykjavíkur til tveggja mánaða fangelsisvistar fyrir ýmis konar þjófnað.

Á meðal þess sem maðurinn var dæmdur fyrir að hnupla voru kardimommudropur úr Hagkaup, sprittflöskur frá Borgarspítala og lambalærissneiðar úr 10-11.

Maðurinn var einnig dæmdur fyrir að hafa stolið bifreið og ekið henni undir áhrifum áfengis.

Dómurinn var ekki skilorðsbundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×