Innlent

Í launalaust leyfi frá Reykjavíkurborg til að aðstoða Svandísi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helga Björg Ragnarsdóttir hefur starfað fyrir Vinstri græn í stjórnmálum.
Helga Björg Ragnarsdóttir hefur starfað fyrir Vinstri græn í stjórnmálum.
Helga Björg Ragnarsdóttir er nýr aðstoðarmaður Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Margrét Erlendsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, segir í samtali við Vísi að Iðunn Garðarsdóttir, annar tveggja aðstoðarmanna Svandísar, sé farin í barnseignarleyfi. Helga Björg komi í hennar stað.

Bjarni Brynjólfsson, upplýsingafulltrúi Reykjavíkurborgar, segir að Helga Björg hafi fengið níu mánaða launalaust leyfi til að flytja sig tímabundið um set yfir í ráðuneytið. Ekki verði ráðið í stöðu Helgu á meðan en hún hefur gegnt stöðu skrifstofustjóra borgarstjóra og borgarritara.

Helga Björg hefur verið kynnt til leiks en auk hennar er Birgir Jakobsson, fyrrverandi landlæknir, aðstoðarmaður ráðherra. Laun aðstoðarmanna eru um 1,2 milljónir króna.

Helga Björg var gagnrýnd í Héraðsdómi Reykjavíkur í sumar þegar dómurinn felldi úr gildi áminningu hennar á hendur fjármálastjóra Ráðhúss Reykjavíkur. Sagði í niðurstöðu dómsins að framkoma Helgu Bjargar í garð starfsmannsins hefði verið „í það minnsta óvirðing, ef ekki lítilsvirðing við samstarfsmann“ sem væri auk þess kynslóð eldri en hún og ætti, „þó ekki væri nema vegna starfsreynslu sinnar, tilkall til örlítillar virðingar.“

Um þá skilyrðislausu hlýðni sem skrifstofustjórinn „virðist ætlast til af stefnanda verður sagt það eitt að þrátt fyrir stjórnunarrétt annars og hlýðniskyldu hins eru undirmenn ekki dýr í hringleikahúsi yfirmanna sinna“, sagði í dómi héraðsdóms.

Var borgin dæmd til að greiða fjármálastjóranum 250 þúsund krónur í bætur og málskostnað upp á 1250 þúsund krónur.


Tengdar fréttir

Iðunn aðstoðar Svandísi

Iðunn Garðarsdóttir mun aðstoða Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×