Meira skorið niður í velferðarmálum en í stjórnsýslunni Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. desember 2010 16:17 Lilja Mósesdóttir og Ásmundur Einar Daðason sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Það gerði Atli Gíslason líka. Mynd/ GVA.
Á sama tíma og skorið er verulega niður í mörgum mikilvægum málaflokkum þá er lítið skorið niður í æðstu stjórnsýslu ríkisins, segja þau Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason í yfirlýsingu sem þau samþykktu fyrir atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið í dag. Þingmennirnir þrír, sem öllu eru hluti af þingflokki VG, sátu öll hjá við atkvæðagreiðslu um frumvarpið. Þremenningarnir segja að forgangsröðun innan fjárlaganna sé ekki nægilega mikil í þágu velferðar, menntunar og bættra lífskjara almennings. „Það er einnig erfitt að réttlæta þá forgangsröðun að á niðurskurðartímum skuli 200 opinberir starfsmenn vinna að aðildarumsókn Íslands að ESB, með milljarða beinum og óbeinum kostnaði. Við undirrituð, og fleiri i þingflokki VG, höfum um nokkurt skeið varað við því að fylgja áfram í blindni efnahagsáætlun AGS. Fjölmargar tillögur okkar varðandi forgangsröðun, tekjuöflun, millifærslur og útgjöld í núverandi fjárlagafrumvarpi hafa ekki fengið málefnalega umræðu. Tillögur okkar hafa verið í samræmi við grunnstefnu VG og ályktanir flokksráðsfunda," segja þremenningarnir í yfirlýsingunni. Þremenningarnir segjast meðal annars hafa lagt fram tillögur um tekjuöflun fyrir ríkissjóð samhliða róttækri endurskoðun á niðurskurði innan velferðarkerfisins. Þótt nokkuð hafi áunnist í því að afstýra stórslysi í upphaflegum niðurskurðaráformum í heilbrigðisþjónustu landsmanna og innan almannatryggingakerfisins þá sé fjárlagafrumvarpið enn boðberi kreppudýpkandi efnahagsáætlunar sem vegi of harkalega að einmitt þeim grunnstoðum sem núverandi ríkisstjórn hafi lofað að standa vörð um.
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Fleiri fréttir Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Sjá meira