„Mourinho fengi 25 leikja bann“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 4. desember 2018 08:00 Klopp var kominn langt út fyrir kassann sinn vísir/getty
Jurgen Klopp missti sig í gleðinni þegar Liverpool skoraði sigurmarkið gegn Everton á Anfield um helgina og hljóp inn á völlinn í fögnuði, sem er stranglega bannað samkvæmt reglum fótboltans. Klopp var ákærður af enska knattspyrnusambandinu í gær fyrir atvikið og kemur líklega í ljós síðar í vikunni hver refsing hans verður. Paul Merson, knattspyrnusérfræðingur hjá Sky Sports, telur að Klopp muni ekki fá mikla refsingu því hann sé Jurgen Klopp. Ef Jose Mourinho hefði gert þetta hins vegar, þá yrði refsingin mjög hörð. „Hann fengi held ég 25 leikja bann,“ sagði Merson í þættinum The Debate. „Ef þetta hefði verið Jose þá hefði hann verið sendur beint upp í stúku um leið og hann kæmi til baka á hliðarlínuna. Jose var rekinn út í Southampton fyrir að fara út fyrir boðvanginn.“ „Allir elska Jurgen Klopp, fyrir utan stuðningsmenn Manchester United. Þetta verður eitt af þeim brotum þar sem hann fær smá aðvörun, ekki gera þetta aftur, enginn meiddist og Marco Silva kippti sér ekki upp við þetta.“ Tim Sherwood, sem þjálfaði í úrvalsdeildinni, var einnig gestur þáttarins og hann gat skilið viðbrögð Klopp. „Hann kann að láta alla borða úr lófanum á sér. Allir elska hann, hann sér það jákvæða í öllu og klæðist tilfinningum sínum,“ sagði Sherwood. „Þar til þú hefur staðið á hliðarlínunni þá getur þú ekki skilið tilfinninguna við að vinna leik, hvað það þýðir fyrir alla.“
Enski boltinn Tengdar fréttir Klopp: Gat ekki haldið aftur af mér Jurgen Klopp gat ekki hamið fögnuð sinn þegar Divock Origi skoraði sigurmark Liverpool gegn Everton í uppbótartíma á Anfield í dag. Þýski knattspyrnustjórinn hljóp inn á völlinn í fagnaðarlátum sínum þó leiktíminn væri ekki úti. 2. desember 2018 20:00 Klopp kærður fyrir að hlaupa inn á völlinn Enska knattspyrnusambandið ákvað í dag að kæra Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, fyrir hegðun hans undir lok leiks Liverpool og Everton í gær. 3. desember 2018 15:43 Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira
Klopp: Gat ekki haldið aftur af mér Jurgen Klopp gat ekki hamið fögnuð sinn þegar Divock Origi skoraði sigurmark Liverpool gegn Everton í uppbótartíma á Anfield í dag. Þýski knattspyrnustjórinn hljóp inn á völlinn í fagnaðarlátum sínum þó leiktíminn væri ekki úti. 2. desember 2018 20:00
Klopp kærður fyrir að hlaupa inn á völlinn Enska knattspyrnusambandið ákvað í dag að kæra Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, fyrir hegðun hans undir lok leiks Liverpool og Everton í gær. 3. desember 2018 15:43