Leggur blessun yfir samráð um úrlausn skuldavanda fyrirtækja 16. desember 2010 15:17 Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Samkeppniseftirlitið hefur í dag birt ákvörðun þar sem heimilað er samstarf vegna samkomulags um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja, en samkomulagið var undirritað í gær. Samningsaðilar eru fjármálafyrirtæki og hagsmunasamtök atvinnulífsins, auk fjármálaráðuneytis og efnahags- og viðskiptaráðuneytis. Samstarf keppinauta á markaði er bannað samkvæmt 10. grein samkeppnislaga. Samkvæmt 15. grein sömu laga getur Samkeppniseftirlitið veitt undanþágur frá því banni og bundið slíkt samstarf skilyrðum. Að mati Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja hefur miðað hægt. Í umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2009, Bankar og endurskipulagning fyrirtækja - Stefnumörkun, sem gefið var út í desember 2009, er sérstaklega bent á að hagfræðileg rök og reynsla annarra þjóða sýni að nauðsynlegt sé að bregðast hratt við skuldavanda rekstrarhæfra fyrirtækja. Það sé því neytendum og atvinnulífinu til hagsbóta að bankar afskrifi eða minnki skuldir rekstrarhæfra fyrirtækja. Meðal annars á þessum grunni telur Samkeppniseftirlitið rétt að veita fjármálafyrirtækjum og hagsmunasamtökum fyrirtækja undanþágu til samstarfs vegna samkomulagsins. Á hinn bóginn lítur Samkeppniseftirlitið svo á að samstarf af þeim toga sem samkomulagið kveður á um geti, einkum til lengri tíma, gefið keppinautum á fjármálamarkaði færi á að samræma verð, viðskiptakjör og vöruframboð til skaða fyrir viðskiptavini og neytendur. Til þess að koma í veg fyrir þetta telur Samkeppniseftirlitið óhjákvæmilegt að setja samstarfinu eftirfarandi skilyrði:Að fjármálafyrirtæki sé þrátt fyrir samkomulagið heimilt að veita viðskiptavinum sínum betri kjör og taka upp viðmið sem eru þeim hagfelldari.Skýrt er kveðið á um að undanþágan veitir ekki rétt til nánari samræmingar á verði og viðskiptakjörum en kveðið er á um í samkomulaginu. Slíkar breytingar á samkomulaginu þarf að bera undir Samkeppniseftirlitið fyrirfram.Settar eru skýrar reglur um samstarf á grundvelli samkomulagsins. Þannig á fulltrúi stjórnvalda að vera viðstaddur samstarfsfundi sem skulu bókaðir. Jafnframt er nauðsynlegt að hvert fjármálafyrirtæki fyrir sig grípi til ráðstafana til að stuðla að því að samkeppnislegur skaði stafi ekki af því samstarfi sem leiðir af samkomulaginu.Undanþágan er tímabundin og gildir til ársloka 2011. Skal við lok hennar gera grein fyrir framkvæmd samstarfsins og hvernig tryggt sé að samstarfinu ljúki.Undanþágan veitir einungis fjármálafyrirtækjum rétt til samstarfs sem ella færi gegn 10. gr. samkeppnislaga. Öðrum aðilum samkomulagsins, s.s. Samtökum atvinnulífsins, er ekki veitt undanþága til samstarfs á sínum vettvangi.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira