Nítjánda opnaði í dag sev skrifar 22. maí 2008 18:09
Nítjánda, veitingastaður og veisluþjónusta á tveimur efstu hæðum Turnsins á Smáratorgi opnaði í dag. Um þrjúhundruð manns voru í opnunarveislu á staðnum og nutu veitinga og útsýnisins. Upprunalega átti að opna staðinn fyrir áramót, en á ýmsu hefur gengið sem seinkað hefur opnuninni. Skemmst er til dæmis að minnast brunans sem varð í turninum kvöld eitt í byrjun apríl. Óskar Finnsson veitingamaður, sagði í viðtali sem birtist í Íslandi í dag á eftir að menn hafi haldið að það væri grín þegar brunavarnarbjöllurnar fóru í gang. Fljótlega áttuðu menn sig á því að alvara var á ferð, og vel gekk að rýma staðinn, en Mata var með fund í öðrum enda staðarins, Byr í hinum. Þeir Mata-menn hafi verið við það að klára sinn fund og því einfaldlega pakkað saman og farið heim. Starfsfólk Byrs hafði þó hvergi nærri lokið sínu kvöldi, og brá því á það ráð að bíða á Friday's í Smáralindinni á meðan verið var að ráða niðurlögum eldsins. Þegar farið var að nálgast miðnætti sneri það aftur í Turninn, kláraði matinn, og skemmti sér fram á rauða nótt. „Við segjum að þetta hafi verið svona gala dinner með Friday's ívafi," segir Óskar kíminn.
Mest lesið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Lífið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Bíó og sjónvarp Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Robert Wilson er látinn Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Lífið Fleiri fréttir Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Sjóðheitt og splunkunýtt Hollywood par Katrín Edda selur í Hlíðunum Þriggja ára snáði stal senunni í messu í Fljótshlíð Fyrstu tónleikar Purrksins í fjörutíu ár Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Sögulegur klæðnaður á dreglinum Myndaveisla frá troðfullri tuttugu ára Bræðslunni Katy Perry og Justin Trudeau á stefnumóti „Þetta var algjört bíómyndamóment“ Sjá meira