Fá ekki greidda fatapeninga 23. október 2005 15:04
Mikillar óánægju gætir meðal starfsmanna sem vinna með fötluðum og þroskaheftum vegna þess að þeir fá ekki greidda fatapeninga, sem þeir eiga rétt á samkvæmt kjarasamningum. Átta og hálfur mánuður er nú liðinn síðan kjarasamningur ríkisins við SFR - stéttarfélag í almannaþágu tók gildi. Þrátt fyrir það hafa félagsliðar og stuðningsfulltrúar sem vinna á sambýlum og fleiri vinnustöðum með fötluðum og þroskaheftum ekki fengið krónu af þeim fatapeningum sem kjarasamningarnir áttu að tryggja þeim. Árni Stefán Jónsson, framkvæmdastjóri SFR, segir mikillar óánægju gæta meðal starfsmanna. Um hundrað félagsmenn komu saman í fyrradag og kröfðust þess að fá fatapeningana greidda. Upphæðin er ekki há á hvern og einn, um fimmtán hundruð krónur, en það samsvarar þó um eins prósents launahækkun. Árni Stefán segir fjármálaráðuneytið hafa bent á svæðisskrifstofur málefna fatlaðra og sagt að þær ættu að greiða fatapeninginn. Forsvarsmenn þeirra leituðu hins vegar til félagsmálaráðuneytisins og sögðust aldrei hafa fengið fjárveitingar fyrir fatapeningum. Félagsmálaráðuneytið leitaði síðan til fjármálaráðuneytisins um fjárveitingu. Í millitíðinni hefur greiðsla fatapeninga tafist og óánægja starfsmanna magnast. Árni Stefán segir að óskað hafi verið eftir fundi með Árna Magnússyni félagsmálaráðherra og verði hann kallaður til ábyrgðar fyrir greiðslu fatapeninganna.
Fréttir Innlent Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu