Stjórnarflokkar deila áfram um löggæslumál 22. maí 2008 11:11 MYND/GVA
Það hefur alls ekki staðið til að leggja niður embætti Ríkislögreglustjóra og þess sér hvorki merki í stefnu stjórnarflokkanna né ríkisstjórnarinnar. Þetta sagði Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum um störf þingsins í dag. Þingmenn stjórnarflokkanna deildu um málið á þingi í dag. Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, innti Arnbjörgu eftir áliti þingflokks Sjálfstæðisflokksins á þeim hugmyndum sem Lúðvik Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, viðraði í síðustu viku. Þar lýsti hann því yfir að hann vildi skoða að leggja niður embætti Ríkislögreglustjóra í núverandi mynd. Sagðist Siv ekki sammála Lúðvík því það þyrfti embætti Ríkislögreglustjóra í ljósi breyttra aðstæðna í heiminum, þar á meðal vegna mikilla ferða fólks yfir landamæri og alþjóðlegrar glæpastarfsemi. Spurði Siv hvorf sjálfstæðismenn hygðust greiða fyrir stefnu Samfylkingarinnar og leggja niður embættið eða hvort sjálfstæðismenn litu á orð Lúðvíks sem hefnd fyrir þann þrýsting sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefði sett á embætti lögreglunnar á Suðurnesjum. Arnbjörg sagðist ekki ætla leggja mat á síðustu spurninguna en að það hefði aldrei staðið til að leggja niður embætti Ríkislögreglustjóra. Ástæða væri fremur til að styrkja embættið. Það yrði að hafa ákveðna þætti sem ekki væri hægt að dreifa á önnur embætti, en þar væri á ferðinni ýmis sérfræðiþekking. Það hefði hvergi komið fram að það væri stefna stjórnarflokkanna að leggja niður embættið og heldur ekki stefna ríkisstjórnarinnar. Taldi Arnbjörg að Lúðvík hefði verið að viðra sína persónulegu skoðun í málinu og hann myndi örugglega skýra hana betur.Sérsveitarmenn sinna almennum löggæslustörfumBirgir Ármannsson.MYND/GVABirgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók undir með Arnbjörgu um að ekki stæði til að leggja niður embætti Ríkislögreglustjóra og sagði að menn yrðu að skoða málið vel. Spurði hann hvort menn teldu að efnahagsbrotadeild hefði þanist of mikið út, en hún hefði næg verkefni, og hvort menn væru á móti greiningardeildinni eða almannavarnadeildinni og teldu að spara ætti þar. Þá sagði hann vissulega hafa fjölgað í sérsveitinni en fram hefði komið að sérsveitarmenn sinntu einnig almennum löggæslustörfum.Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, kom í pontu og sagðist deila skoðun með Lúðvík. Hann teldi að hægt væri að auka samlegðaráhrif með því að flytja stóra verkþætti til stóru lögregluembættanna á suðvesturhorninu, á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Hins vegar ætti stefnumótun og samræming að vera í höndum Ríkislögreglustjóra.Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn renna ekki samanLúðvík Bergvinsson.MYND/GVALúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sagði að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem hann héldi því fram að hann teldi þróun á embætti Ríkislögreglustjóra ekki á þann veg sem hann vildi sjá. Umræða um löggæslumál þyrfti að fara fram á breiðum grundvelli og fram hefði komið að fólk vildi sjá meiri löggæslu í nærsamfélaginu.Hann benti á að talað hefði verið um öflugt eftirlit með útlendingum og glæpastarfsemi í umræðunni á þingi en það eftirlit færi fyrst og fremst fram hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Hins vegar hefðu komið fram hugmyndir sem settu það starf í uppnám og vísaði Lúðvík þar til hugmynda dómsmálaráðherra um að stía í sundur lögreglu og tollgæslu á Suðurnesjum. Það væri aldrei gott að byggja upp tvær höfuðstöðvar á 500 metra radíus og átti þar við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og Ríkislögreglustjóra.Sagði Lúðvík að það mætti ekki gleyma því að þótt Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn væru í stjórnarsamstarfi hefðu flokkarnir ekki runnið saman.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Sjá meira