Innlent

Fulltrúi VG í stjórn RÚV samþykkti laun Páls

Andri Ólafsson skrifar
Páll Magnússon útvarpsstjóri
Páll Magnússon útvarpsstjóri

Svanhildur Kaaber, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn RÚV ohf., samþykkti að tvöfalda laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra þegar RÚV var breytt í opinbert hlutafélag. Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður VG hefur gagnrýnt launin í dag.

Ómar Benediktsson, stjórnarformaður RÚV, staðfesti við Vísi í dag að allir stjórnarmenn hefðu farið yfir ráðningarsamning útvarpsstjóra og samþykkt hann.

Fram kom í Fréttablaðinu í morgun að laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra hefðu tvöfaldast þegar Ríkisútvarpinu var breytt í opinbert hlutafélag. Hann er nú með um það bil 500 þúsund krónum meira í laun en Geir H. Haarde forsætisráðherra.

Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri-grænna sagði við Vísi í dag að launahækkunin sé grafalvarlegt mál og þvert á það sem Páll Magnússon hafi lofað þegar frumvarp um breytingar á rekstrarfyrirkomulagi RÚV fór fyrir Alþingi.

En fulltrúi flokks Kolbrúnar í stjórn RÚV samþykkti samninginn án athugasemda.

"Enda er þetta vel ígrundaður samningur," segir Ómar Benediktsson stjórnarformaður RÚV.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×