Banna súludans en leyfa stauradans 17. október 2007 13:13
Á síðasta fundi landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar var samþykkt að nektar-eða súludans yrði alfarið bannaður í sveitarfélaginu. Hinsvegar hefði nefndin ekkert á móti því að leyfa stauradans. Í framhaldi af þessu bárust fregnir af því að stjórn sveitarfélagsins ætli að beita sér af alefli fyrir uppsetningu á ljósastaur í sveitarfélaginu. Kristján Ágúst Magnússon formaður landbúnaðarnefndarinnar segir að fyrir fundinum hafi legið að gera athugasemdir við lögreglusamþykkt sveitarfélagsins enda bændur bundnir samþykktinni hvað varðar lausagöngu á fé, skotveiði og fleira. "Við samþykktum svo að taka undir álit félagsmálanefndar um að nektardans yrði alfarið bannaður í sveitarfélaginu," segir Kristján í samtali við Vísi. Að sögn Kristján spunnust mjög fjörugar umræður um málið á fundinum. Einn fundarmanna, á sjötugsaldri, spurði hvort þetta þýddi að hann gæti ekki boðið ungri dömu heim til sín í "dans". Honum var sagt að láta kjurt liggja því sennilega myndi slíkt enda með hjartaáfalli hjá honum. Einnig var spurt um hvort nektardansbannið næði einnig til gagnamannakofa. Kristján Ágúst segir í því sambandi að hann viti ekki til að nokkurntíma hafi komið upp vandræði vegna nektardans í þeim kofum. "Við ákváðum svo að þótt súludans væri nú bannaður í sveitarfélaginu væri stauradans leyfður áfram," segir Kristján Ágúst. "Og svo fréttum við af því að sveitarfélagið væri að reyna að koma upp ljósastaur innan sveitarmarkanna."
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira