Styrktu Lyngás um milljón í minningu Fanneyjar Eddu Erla Hlynsdóttir skrifar 17. nóvember 2010 14:47 Páll Óskar tók lagið með Föxunum áður en hann afhenti ávísunina í morgun
Samstarfsfélagar foreldra Fanneyjar Eddu Frímannsdóttur, tæplega þriggja ára stúlku sem lést fyrr á þessu ári úr taugahrörnunarsjúkdómi, afhentu Lyngási ríflega eina milljón króna í morgun. Fénu söfnuðu þeir með sölu á laginu „Ljós í myrkri" sem sungið er af Páli Óskari. Höfundur lagsins er Gunnar Guðmundsson og textasmiður er Vignir Örn Guðnason, en þeir starfa báðir með foreldrum Fanneyjar Eddu hjá Flugfélagi Íslands. Lagið er enn til sölu. Styrkurinn var afhentur Lyngási, sem er dagvistun fyrir fötluð börn og unglinga, við hátíðlega athöfn þar sem Páll Óskar tók lagið með hljómsveitinni Föxunum sem skipuð er níu flugmönnum Flugfélags Íslands. Lagið „Ljós í myrkri" var samið til styrktar Fanneyju Eddu en hún lést skömmu eftir að lagið var tilbúið til flutnings. Hún var þá rétt tæplega þriggja ára gömul. Birna Björnsdóttir, forstöðumaður Lyngáss, segir styrkinn koma sér ákaflega vel en daglega dvelja 26 börn og ungmenni á Lyngási. Fanney Edda Til stendur að endurnýja einskonar hljóðfæri sem kallast „sound beam" fyrir hluta af söfnunarfénu en um er að ræða hljómborð með sérstökum hljóðnema sem nemur hljóð, blástur og hreyfingar, og kemur þeim til skila með tónum. Hljóðfærið er afar vinsælt hjá börnunum á Lyngási og er afar þroskandi.Birna segir einnig stefnt að því að kaupa ýmiss konar tæki með rofum en mörg barnanna eiga erfitt með að nota leikföng nema þá að kveikja á þeim með rofa. Þá hafa verið fest kaup á sogdælu fyrir hluta af söfnunarfénu, en dælan er til að soga slím úr hálsi þeirra sem eiga erfitt með að losa sig við það sjálfir.Af þeim 26 börnum og ungmennum sem daglega koma á Lyngás eru sjö á leikskólaaldri. Fjögur börn um eins árs aldurinn byrjuðu á Lyngási á þessu ári. Nítján börn og ungmenni yfir sex ára sækja daglega þroskandi afþreyingu, þjálfun og samveru á Lyngási. Í marsmánuði var ítarlega fjallað um sögu Fanneyjar Eddu í Íslandi í dag þar sem rætt var við foreldra hennar og greint frá hetjulegri baráttunni við taugahrörnunarsjúkdóminn. Fanney Edda lést skömmu síðar úr þessum illvíga sjúkdómi og var greint frá því í fréttum Stöðvar 2 í apríl að samstarfsfélagar foreldra hennar hefðu samið lag og að ágóði af sölu þess rynni til styrktar Lyngási. Enn er hægt að kaupa lagið, bæði í gegn um vefsíðuna Ljós í myrkri, en einnig eru eintök eftir hjá stærstu verslunum N1 á höfuðborgarsvæðinu. Allur ágóði rennur til Lyngáss, sem rekið er af styrktarfélaginu Ási. Þeim sem vilja kynna sér starfsemi Lyngáss er bent á að smella hér.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Sjá meira