Nítján ára grunaður um nærri 70 innbrot 17. nóvember 2010 06:00
Nítján ára piltur er grunaður um að hafa framið að minnsta kosti á sjöunda tug innbrota í sumarhús auk annarra brota á þessu ári. Pilturinn var síðast handtekinn, ásamt öðrum pilti af erlendum uppruna, af lögreglunni í Borgarfirði og Dölum fyrr í þessum mánuði eftir að brotist hafði verið inn í átta sumarbústaði í Skorradal. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti þá einnig að ná tali af honum vegna brota í sínu umdæmi. Lögreglan í Borgarnesi ók því báðum piltunum á móti lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu sem tóku við þeim og fluttu til Reykjavíkur, þar sem íslenski pilturinn var yfirheyrður. Þá rannsakar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fjársvikamál, þar sem greiðslukortanúmer fólks hafa verið notuð til að svíkja út fé. Yfir þúsund greiðslukortanúmer, bæði íslensk og erlend, fundust í tölvu piltsins, sem er grunaður um svikin. Mikil innbrotahrina gekk yfir sumarbústaðabyggðir á Suður- og Vesturlandi fyrr á árinu, eins og komið hefur fram. Mál sem risið hafa vegna hennar eru nú tekin að streyma til ákæruvaldsins. Umræddur piltur er talinn eiga hlut að stórum hluta innbrotanna, yfirleitt í félagi við sér yngri pilta. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, vill ekki tjá sig efnislega um málið, en staðfestir að mál á hendur einum einstaklingi, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur kallað eftir frá Selfossi og Borgarnesi til ákærumeðferðar, slagi hátt í sjötíu, ásamt þeim sem eru til meðferðar á höfuðborgarsvæðinu. Theodór Þórðarson, yfirlögregluþjónn í Borgarnesi, segir sumarbústaðaeigendur í Borgarfirði hafa átt fundi og ráðfært sig við lögreglu um hvernig best megi vernda sumarhúsin gegn innbrotsþjófum. Tæknin sé nú orðin með þeim hætti að auðvelt sé að koma upp ýmiss konar búnaði sem gerir eigendum kleift að fylgjast með bústöðum sínum og fæli þjófa frá. Þá sé nágrannavarslan afar mikilvæg verði fólk vart við grunsamlegar mannaferðir. Það geti skrifað hjá sér bílnúmer og haft samband við lögreglu. „Hins vegar er ekki ráðlegt að fólk hætti sér í námunda við hina grunsamlegu," útskýrir Theódór. „Þeir geta verið illa áttaðir af neyslu og oft í slíkum látum að alveg óvíst er hvernig þeir bregðast við."jss@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Sjá meira