Innlent

Handtekinn fyrir að stela blómum

Lögregla handtók í gær karlmann í Kópavogi um kvöldmatarleytið vegna gruns um þjófnað en þetta er í annað skiptið á nokkrum dögum sem hann var handtekinn vegna slíks. Í bakpoka mannsins, sem er á fertugsaldri, fannst fatnaður og rakvélar auk blóma sem lögregla telur að maðurinn hafi tekið ófrjálsri hendi. Maðurinn var tekinn um síðustu helgi grunaður um að hafa stolið fötum úr verslun í miðborginni.

Þá var fartölvu stolið úr skóla í Kópavogi í gær en hún fannst nokkru síðar. Ekki er vitað hver þjófurinn er. Í miðborginni var seðlaveski stolið af konu sem brá sér á hárgreiðslustofu. Konan lagði frá sér veskið í gluggakistu en það var horfið þegar hún hugðist vitja þess skömmu síðar. Seðlaveski var líka stolið þegar brotist var inn í bíl í Kópavogi. Veskið, sem hafði m.a. að geyma greiðslukort, var skilið eftir í framsæti bílsins.

Í frétt frá lögreglunni ítrekar hún þau tilmæli að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að verðmæti séu ekki í augsýn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×