Fundað með Dönum þann 5. nóv. um varnarmál 17. október 2007 14:15 MYND/Pjetur
Til stendur að funda með dönskum yfirvöldum þann 5. nóvember vegna þess rammasamkomulags og yfirlýsingar sem Ísland og Danmörk hafa gert vegna samstarfs á sviði öryggis- og varnarmála og viðbúnaðar. Þetta kom fram í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra í fyrirspurnartíma í dag. Siv Friðleifsdóttir úr Framsóknarflokknum spurði ráðherrra hvort hafin væri samvinna við Norðmenn og Dani á grundvelli rammasamkomulags við þjóðirnar sem gerður var í apríl síðastliðnum. Svaraði utanríkisráðherra því játandi. Enn fremur sagði Ingibjörg Sólrún að fundað hefði verið með Norðmönnum þann 1. október og að hún hefði þegar sent utanríkismálanefnd minnisblað vegna þess fundar. Ráðherra var einnig spurður um afstöðu hans til hugmynda Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra um formlegt samstarf milli landhelgisgæslustofnana á Norðurhöfum og benti Siv á að ekki heyrðu allar slíkar stofnanir undir borgaraleg yfirvöld. Ingibjörg Sólrún sagði að það væri í sjálfu sér gott að eiga samstarf við strandgæslustofnanir annarra ríkja í Norðurhöfum, sérstaklega í ljósi þess að skipaumferð myndi aukast þar á næstu árum. Mikilvægt væri meðal annars að hafa samráð um björgunaraðgerðir ef til slysa kæmi á Norður-Atlantshafi. Skoða þyrfti hvernig samvinna hinnar borgaralegu íslensku Landhelgisgæslu yrði við strandgæslustofnanir annarra ríkja sem heyrðu undir hernaðaryfirvöld en ráðherra ítrekaði að málið væri enn á hugmyndastigi.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira