Innlent

Fá fjögur kíló af Rússaþorski fyrir eitt kíló af íslenskum

Íslenskir útgerðarmenn eru farnir að leigja þorskkvóta af Rússum í Barentshafi. Þeir geta leigt upp í fjögur kíló fyrir andvirði eins kílós á Íslandsmiðum.

Leiguverðið í Barentshafi er aðeins 64 krónur á kílóið en við Íslandsstrendur gengur leigukvótinn á um og yfir 200 krónur kílóið. Samherji, HB Grandi og Brim standa að leigunni en fyrir eiga þau fyrirtæki samanlagt um tvö þúsund tonna þorkskkvóta í rússneskri lögsögu, samkvæmt samningum.

Það er heldur meira en fyrirtækin taka nú á leigu en þau gera það til þess að skipin sem send verða í Barentshafið geti öll náð fullfermi í einni eða fleiri veiðiferðum. Útgerðirnar leigja jafnframt kvóta fyrir meðafla. Stórir frystitogarar verða sendir til veiðanna.

Góðar aflahorfur eru nú í Smugunni og er fréttastofunni kunnugt um að fleiri útgerðir skoði möguleika á kvótaleigu eða samvinnu við Rússa um veiðar fyrir þá á íslenskum skipum sem verða verkefnalítil vegna niðurskurðar á þorskveiðum hér við land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×