Tölur um skattbyrði bárust ekki OECD í tæka tíð 17. október 2007 12:03
Engar tölur um heildarskattbyrði á Íslandi í samanburði við önnur lönd eru birtar í nýjustu skattaskýrslu OECD. Ástæðan er sú að tölurnar bárust ekki til OECD frá fjármálaráðuneytinu íslenska í tæka tíð. Hin árlega skattaskýrsla Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, var birt í dag en í henni er borin saman skattbyrði milli iðnríkja heims og breytingar milli ára. Tölurnar fyrir Ísland undanfarin ár hafa sýnt meiri hækkun skattbyrði hérlendis en í öðrum ríkjum. Í ár sjást hins vegar engar tölur fyrir Ísland. Undir dálki Íslands eru aðeins bókstafirnir n og a, skammstöfun fyrir "not available" eða ekki tiltækar. OECD fær uppýsingar um Ísland frá fjármálaráðuneytinu hérlendis. Í ár tókst ráðuneytinu hins vegar ekki að koma íslensku tölunum í tæka tíð til OECD, að sögn Þorsteins Þorgeirssonar, skrifstofustjóra efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis. Skýringin, að hans sögn, er sú að ráðuneytið þurfti að bíða eftir upplýsingum frá annarri stofnun. Einnig hafi sumarleyfi starfsmanna og þröngur tímarammi spilað inn í og segir Þorsteinn það miður að ekki hafi tekist að skila tölunum í tæka tíð. Hann tekur hins vegar fram að tölurnar fyrir Ísland séu núna tilbúnar og hafi birst í fylgigögnum Þjóðhagsspár sem fylgdi fjárlagafrumvarpinu í byrjun þessa mánaðar.
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Sjá meira