Rjúpnaveiðieftirlit úr þyrlu Landhelgisgæslunnar Erla Hlynsdóttir skrifar 17. nóvember 2010 12:14
Lögreglan kemst yfir mun stærra svæði og fær betri yfirsýn yfir rjúpnaveiðilendur þegar hún nýtur aðstoðar þyrlu Landhelgisgæslunnar. Arnar Geir Magnússon, lögreglumaður á Ólafsvík, fékk að fljóta með TF-Líf í gæsluferð á laugardag og hefur umhverfisráðuneytið látið útbúa myndband úr ferðinni þar sem einnit er rætt við Arnar Geir, sem og Auðunn F. Kristinsson, yfirstýrimann hjá Landhelgisgæslunni. Myndbandið má skoða með því að smella á tengilinn hér að ofan. Að sögn Auðuns er þetta í annað skiptið á þessu veiðitímabili sem Landhelgisgæslan nýtir þyrluna í eftirlit með rjúpnaveiðum. Í ferðinni var lent hjá tveimur skyttum og var önnur þeirra án skotvopnaleyfis. Byssa hennar og skotvopn voru því gerð upptæk. Vísir greindi frá því í morgun að fjórtán rjúpnaveiðimenn hafa verið teknir á þessu veiðitímabili vegna brota, aðallega brota á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Auðunn tekur fram að rjúpnaveiðieftirlitinu sé sinnt samhliða öðrum störfum Landhelgisgæslunnar. Að sögn Arnars Geirs er athugað hvort veiðimenn hafi tilskylin leyfi, veiðileyfi og vopnaleyfi, auk þess sem þeir þurfa að hafa veiðikort og heimild til að veiða einmitt þar sem þeir eru við veiðar. Einnig eru dæmi um að lögreglan skoði feng veiðimanna til að tryggja að þeir hafi farið að lögum og reglum. Ljósmyndir úr ferðinni má skoða á vef umhverfiráðuneytisins en þar er myndbandið einnig aðgengilegt ásamt frekari upplýsingum. Minnt er á að rjúpnaveiði er aðeins heimil föstudaga, laugardaga og sunnudaga, til og með 5. desember. Því eru níu veiðidagar eftir af þessu tímabili.
Tengdar fréttir Fjórtán teknir vegna brota við rjúpnaveiði Lögreglan á Snæfellsnesi lagði hald á skotvopn og skotfæri rjúpnaskyttu við Dagverðará á laugardag þar sem skyttan hafði ekki skotvopnaleyfi. Lögreglan fór þennan daginn í gæsluflug með áhöfn TF-Líf og var ákveðið að sinna rjúpnaveiðieftirliti úr lofti. Lítið var um veiðimenn en afskipti voru höfð af tveimur rjúpnaskyttum, þeim við Dagverðará og annarri skammt ofan við Grundarfjörð. 17. nóvember 2010 10:42 Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira
Fjórtán teknir vegna brota við rjúpnaveiði Lögreglan á Snæfellsnesi lagði hald á skotvopn og skotfæri rjúpnaskyttu við Dagverðará á laugardag þar sem skyttan hafði ekki skotvopnaleyfi. Lögreglan fór þennan daginn í gæsluflug með áhöfn TF-Líf og var ákveðið að sinna rjúpnaveiðieftirliti úr lofti. Lítið var um veiðimenn en afskipti voru höfð af tveimur rjúpnaskyttum, þeim við Dagverðará og annarri skammt ofan við Grundarfjörð. 17. nóvember 2010 10:42