Þrír vilja formannsstólinn í Framsókn 5. desember 2008 21:11 Frá flokksþingi Framsóknarflokksins árið 2005. Fremst eru: Páll Pétursson fyrrv. ráðherra, Steingrímur Hermannsson fyrrv. forsætisráðherra, Sigurjón Örn Þórsson þáverandi aðstoðarmaður ráðherra og Sæunn Stefánsdóttir núverandi ritari Framsóknarflokksins.
Þrír hafa ákveðið gefa kost á sér til formennsku í Framsóknarflokknum á landsþingi flokksins í janúar. Valgerður Sverrisdóttir formaður Framsóknarflokksins tilkynnti í gær að hún ætlar ekki að sækjast eftir áframhaldandi setu á formannsstóli. Hún tók við af Guðna Ágústssyni þegar hann sagði af sér formennsku 17. nóvember. Guðni hafði þá verið formaður í rúmlega eitt og hálft ár. Jón Vigfús býður sig fram til formanns Í dag tilkynntu Höskuldur Þórhallsson, þingmaður, og Páll Magnússon, bæjarritari Kópavogs, um framboð sitt. Nú í kvöld barst þriðja tilkynningin um framboð. Jón Vigfús Guðjónsson, 39 ára einstæður sjómaður á Akureyri, gefur kost á sér sem næsti formaður Framsóknarflokksins. Framsóknarflokkurinn er öfgalaus og fjölskylduvænn stjórnmálaflokkur, að mati Jóns. ,,Ég hef óbilandi trú á Framsóknarflokknum sem hefur þó átt í vök að verjast undanfarið en það er að mínu mati mest innanflokkserjur sem eru búnar að skemma fyrir okkur undanfarin misseri," segir Jón í tilkynningu. Jón Vigfús Guðjónsson. Virkur í flokksstarfi Jón er fæddur og uppalinn í Suðureyri við Súgandafjörð, bjó lengi í Reykjavík en hefur undanfarin þrjú ár verið búsettur á Akureyri. Jón hefur verið virkur þátttakandi í flokksstarfi Framsóknarflokksins. Meðal annars í Reykjavík og þá tók hann þátt í prófkjöri flokksins á Akureyri fyrir seinustu bæjarstjórnarkosningar. Jón skipaði 13. sæti Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir Alþingiskosningarnar 2007. Flokksþing Framsóknarflokksins verður haldið 16. til 18. janúar í Vodafonehöllinni við Hlíðarenda. Birkir Jón Jónsson, þingmaður, hefur einn líst yfir framboði til varaformanns.
Tengdar fréttir Valgerður hættir sem formaður í janúar Valgerður Sverrisdóttir formaður Framsóknarflokksins ætlar ekki að sækjast eftir áframhaldandi setu á formannsstóli og mun hætta á næsta flokksþingi sem haldið verður í janúar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Valgerði á heimasíðu flokksins. 4. desember 2008 16:03 Höskuldur býður sig fram til formennsku í Framsóknarflokknum Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur ákveðið gefa kost á sér til formennsku í Framsóknarflokknum á landsþingi flokksins í janúar. 5. desember 2008 17:54 Tjáir sig ekki um formannsframboð Siv Friðleifsdóttir þingflokksformaður Framsóknarflokksins hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún hyggist bjóða sig fram til formanns flokksins. Hún segir það ekki hafa verið á dagskrá hjá sér en Valgerður Sverrisdóttir núverandi formaður lýsti því yfir í dag að hún ætli sér ekki í formannsframboð. 4. desember 2008 20:08 Höskuldur íhugar alvarlega formannsframboð Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, íhugar alvarlega að gefa kost á sér sem formaður Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi sem haldið verður í janúar. 4. desember 2008 14:07 Páll Magnússon býður sig fram til formanns Framsóknarflokksins Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi, hefur ákveðið að gefa kost á sér til formennsku í Framsóknarflokknum á landsþingi flokksins í janúar. Hann segir, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér fyrir stundu, að ákvörðunin sé tekin eftir samtöl við fjölmarga flokksmenn um stöðu flokksins og framtíð hans. 5. desember 2008 16:16 Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira
Valgerður hættir sem formaður í janúar Valgerður Sverrisdóttir formaður Framsóknarflokksins ætlar ekki að sækjast eftir áframhaldandi setu á formannsstóli og mun hætta á næsta flokksþingi sem haldið verður í janúar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Valgerði á heimasíðu flokksins. 4. desember 2008 16:03
Höskuldur býður sig fram til formennsku í Framsóknarflokknum Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur ákveðið gefa kost á sér til formennsku í Framsóknarflokknum á landsþingi flokksins í janúar. 5. desember 2008 17:54
Tjáir sig ekki um formannsframboð Siv Friðleifsdóttir þingflokksformaður Framsóknarflokksins hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún hyggist bjóða sig fram til formanns flokksins. Hún segir það ekki hafa verið á dagskrá hjá sér en Valgerður Sverrisdóttir núverandi formaður lýsti því yfir í dag að hún ætli sér ekki í formannsframboð. 4. desember 2008 20:08
Höskuldur íhugar alvarlega formannsframboð Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, íhugar alvarlega að gefa kost á sér sem formaður Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi sem haldið verður í janúar. 4. desember 2008 14:07
Páll Magnússon býður sig fram til formanns Framsóknarflokksins Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi, hefur ákveðið að gefa kost á sér til formennsku í Framsóknarflokknum á landsþingi flokksins í janúar. Hann segir, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér fyrir stundu, að ákvörðunin sé tekin eftir samtöl við fjölmarga flokksmenn um stöðu flokksins og framtíð hans. 5. desember 2008 16:16