Tvær milljónir í bætur eftir vinnuslys 5. desember 2008 14:45 Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Túnfót ehf. til þess að greiða manni sem slasaðist við þrif í kjúklingasláturhúsi fyrirtækisins á Hellu árið 2003 tæpar tvær milljónir króna auk vaxta. Maðurinn var að klofa yfir lágan vegg í sláturhúsinu þegar hann rann til á mottu þannig að af hlaust 20 prósent örorka. Í munnlegri skýrslu mannsins fyrir dómi kom fram að stefnandi hafi verið í venjubundinni eftirlitsferð um húsið og verið að taka út þrif starfsmanns. Hefði hann verið kominn með hægri fót yfir þröskuldinn þegar plastmottan rann af stað. Hefði hann borist með henni, en misst jafnvægið og lent á skógrind, en kastast þaðan í gólfið. Stefnandi kvaðst hafa leitað til læknis daginn eftir óhappið, enda hefði það átt sér stað að kvöldlagi. Hefði hann látið yfirmann sinn vita af því, en ekki tilkynnt það forsvarsmönnum stefnda. Taldi hann víst að þeir hefðu átt að vita af því þar sem hann gekk með hönd í fatla um nokkurt skeið. Sérstaklega aðspurður sagðist stefnandi oft hafa kvartað yfir því við sláturhússtjórann og sinn yfirmann að plastmottan væri laus á gólfinu og þvældist um gólfið. Stefndi hafnaði því að slys stefnanda verði rakið til hættulegra og saknæmra aðstæðna á slysstað, að skort hafi á leiðbeiningar um hvernig farið skyldi yfir umræddan þröskuld. Dómurinn komst hins vegar að því að stefndi skyldi 2/3 hluta þeirrar fjárhæðar sem stefnandi krafðist og er stefndi því dæmdur til að greiða 1.918.526 krónur, ásamt 4,5% ársvöxtum frá 20. desember 2003 til 25. apríl 2007.
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið „Þá bara krassa lungun“ Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Fleiri fréttir Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending: Bandero kominn til Sundahafnar Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Sjá meira