Vill að Einar fari að ráðum Hafró og leyfi hvalveiðar 5. desember 2008 18:49
Japanar sleikja út um þegar þeir hugsa um íslenskt hvalkjöt, segir Kristján Loftsson, forstjóri Hvals. Hann segir tímabært að Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, fari að ráðum Hafró og leyfi veiðar á ný. Kristján Loftsson, hvetur sjávarútvegsráðherra til að leyfa veiðar á 150 langreiðum eins og ráðlagt er, en einnig á hrefnu. Hann segir að stefna sé að nýta allar náttúruauðlindir og það sé eins farið með hvalkjöt og fiskveiðar. Mjög skiptar skoðanir hafa verið á málinu hér á landi sem og utan landsteinanna í gegnum árin. Kristján segir þetta vera að breytast og er ekki hræddur við mótstöðu. Hann segir að það hafi sýnt sig að veiðarnar sem hafa verið stundaðar hér undanfarin ár hafi ekki haft neikvæð áhrif. Ef allt færi á fullt á ný myndi Hvalur þurfa að fjárfesta fyrir nokkur hundruð milljónir króna í ný tæki og búnað enda gæðakröfur breyst mikið á síðustu árum. Ekkert mál verði að selja hann út t.a.m. til Japans. ,,þeir eru byrjaðir og sleikja út um," segir Kristján. Ekki náðist í sjávarútvegsráðherra vegna málsins í dag.
Mest lesið Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Erlent Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Erlent Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Innlent Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Erlent „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Innlent Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Innlent Fleiri fréttir Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Borgarstjóri fór með rangt mál Gagnrýnin hugsun skipti máli Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Fjórir slást um oddvitasæti Viðreisnar Afsögn þingmanns, hótanir Trumps og í beinni frá Svíþjóð Mun hærri dánartíðni og meiri örorka hjá fyrrum vöggustofubörnum „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Vilja Laugardalshöll líkt og þeim var lofað Kviknaði í Svarta sauðnum í Þorlákshöfn Taldi ekki sérstaka nauðsyn á að hneppa Helga Bjart í varðhald Sjá meira